Katrín: Dapurlegt að skynja þessi viðhorf

For­sæt­is­ráð­herra segir að þing­mönnum beri skylda til að umgang­ast emb­ætti sín af virð­ingu.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir dap­ur­legt að skynja þau við­horf sem fram komi í ummælum þing­manna Mið­flokks­ins þegar varla sé liðið ár frá upp­hafi MeToo-umræð­unnar þar sem konur í stjórn­málum meðal ann­arra stigu fram og greindu frá reynslu sinni. Þing­mönnum beri skylda til að umgang­ast emb­ætti sín af virð­ingu. Þetta segir hún í sam­tali við blaða­mann Vísis.

Hún rifjar upp að Metoo-bylt­ingin hafi byrjað fyrir ári en þar hafi konur í stjórn­málum ekki hvað síst átt frum­kvæði og stigið margar fram til að segja frá sinni upp­lifun af kyn­bund­inni orð­ræðu og kyn­ferð­is­legri áreitni.

„Það er dap­ur­legt að skynja þessi við­horf ekki síst í garð stjórn­mála­kvenna sem skína út úr þessum sam­tölum sem þarna hafa birst,“ segir Katrín. Þótt þing­menn­irnir hafi ekki verið í opin­berum erinda­gjörðum hafi þeir verið innan um almenn­ing þar sem allir gátu hlýtt á það sem þeirra fór á milli.

Þingmönnum ber skylda til að umgangast embættin af virðingu

„Okkur ber skylda til að umgang­ast emb­ætti okkar af virð­ingu og ég verð að segja að mér finnst þetta ekki gott fyrir okkur stjórn­mála­menn og okkur þing­menn. Þetta mun hafa áhrif á virð­ingu Alþingis og virð­ingu stjórn­mál­anna og það er mjög dap­ur­legt,“ segir Katrín við Vísi.

Þetta muni einnig hafa áhrif á sam­skipti fólks og flokka í þing­inu. Þetta afhjúpi það kyn­bundna orða­lag sem vakin hafi verið athygli á í me-too bylt­ing­unni gagn­vart konum og öðrum hópum sem hún sjálf kann­ist við.

„Þar sem er talað um stjórn­mála­konur með til­teknum hætti. Mjög niðr­andi hætti sem er engum til sóma sem kemur að. Auðvitað hefði ég vonað að við værum komin lengra í jafn­rétt­isátt en að fólk væri enn á þessum stað. En auð­vitað er þetta eitt­hvað sem maður kann­ast við,“ segir hún.

Þeir þing­menn sem þarna eigi hlut að máli verði að gera það upp við sig hvernig þeir bregð­ist við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár