Máli Aðalsteins vísað frá: Hæstiréttur tekur ekki efnislega afstöðu

Hæstiréttur hefur vísað frá kæru Aðalsteins Kjartans­sonar á hendur lögreglu á Norður­landi eystra. Telur Hæstiréttur að Aðalsteini hafi ekki verið heimilt að áfrýja niður­stöðu Lands­réttar. Lögmaður Aðalsteins segir koma til greina að vísa málinu til Mann­réttinda­dómstóls Evrópu.

Á erindi til Strassborgar
Á erindi til Strass­borgar Lögmaður Aðal­steins Kjart­ans­sonar, blaða­manns Stund­ar­innar, telur til­efni til þess að vísa máli hans til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Hæstiréttur vísaði í dag frá kæru Aðalsteins Kjartans­sonar, blaða­manns Stundarinnar, á niður­stöðu Lands­réttar í máli hans gegn Lögreglunni á Norður­landi eystra. Aðalsteinn kærði ákvörðun lögreglunnar á Norður­landi eystra sem veitti honum réttar­stöðu sakbornings og hugðist kalla hann til skýrslu­töku vegna umfjöllunar hans um skæruliða­deild Samherja. Héraðs­dómur Norður­lands eystra úrskurðaði upphaf­lega að lögreglu hefði verið óheimilt að veita Aðalsteini réttar­stöðu grunaðs manns en Lands­réttur vísaði þeim dómi frá. Aðalsteinn áfrýjaði þeim úrskurði til Hæstaréttar sem nú hefur birt ákvörðun sína.

Frávísun Hæstaréttar gerist sama dag og dómnefnd Blaða­mann­verðalauna Blaðamanna­félags Íslands tilkynnti að Aðalsteinn væri tilnefndur til blaðamanna­verðlauna ársins 2021, meðal annars fyrir umfjöllun um téða skæruliða­deild Samherja.

Telur ekki heimilt að kæra úrskurð Landsréttar

Í dómi Hæstaréttar kemur fram sú lögskýring að Aðalsteinn hafi ekki haft heimild til að kæra úrskurð Lands­réttar til Hæstaréttar, þar eð kæru­heimild sú sem stuðst var við og fram kemur í lögum um sakamál hafi verið verið skýrð svo að hún tæki almennt aðeins til endanlegra úrskurða um frávísun mála sem höfðuð hefðu verið með ákæru. Kæruheimildinn næði hins vegar ekki til úrskurða Lands­réttar um frávísun kæru vegna rannóknar­úrskurð eða úrskurða um réttarfars­atriði.

Í dómi Hæstaréttar segir að hin kærða niður­staða Lands­réttar hafi ekki falið í sér endanlegar lyktir sakamáls heldur þá niður­stöðu að dómstólar hefðu ekki vald til þess að kveða á um lögmæti rannsóknar­athafna lögreglu á þessu stigi sakamála­rannsóknar. Ekki væri því heimild fyrir hendi til að kæra úrskurðinn til Hæstaréttar og var málinu því vísað frá.

Undanþáguákvæði eru í lögum er lúta að blaðamönnum

Hæstiréttur tekur því ekki efnislega afstöðu til þess hvort Lögreglunni á Norður­landi eystra hafi verið heimilt að veita Aðalsteini réttar­stöðu grunaðs manns og kalla hann til yfirheyrslu, ekki frekar en Lands­réttur gerði. Í úrskurði Héraðs­dóms kom hins vegar fram að í almennum hegningar­lögum sé undanþágu­ákvæði er snúi að þeim greinum laganna sem lögreglan vill maina að Aðalsteinn hafi gerst brotlegur við, það er brot á friðhelgi einkalífs. Lögin eigi ekki við þegar um sé að ræða almanna- eða einka­hagsmuni. „Er ljóst að þar er meðal annars átt við móttöku blaða­manna á gögnum sem innihalda upplýsingar sem eiga erindi við almenning,“ sagði í dómi Héraðs­dóms. Enn fremur sagði í dómnum að „blaða­maður verði ekki talinn brotlegur við 228. gr. og/eða 229. gr. almennra hegningar­laga fyrir það eitt að móttaka og sjá viðkvæm persónuleg gögn sem ekki varða almenning, enda er það þáttur í starfi blaða­manna að móttaka ýmis gögn og ábendingar sem þeir meta hvort eigi erindi við almenning.“

Í greinar­gerð lögreglu, bæði fyrir héraðs­dómi og fyrir Lands­rétti kom fram að þeir blaðamenn sem fjölluðu um skæruliða­deild Samherja, þar á meðal Aðalsteinn, væru grunaðir um að hafa tekið á móti eða deilt með öðrum kynferðis­legu efni af Páli Steingríms­syni, skip­stjóra Samherja og meðlimi í yfir­lýstri „skæruliða­deild“ útgerðarinnar. Páll kærði hins vegar ekki  slík brot til lögreglu og lögregla hefur ekki sýnt væri fram á að slíkt efni hafi farið í dreifingu.

Tilefni til að fara með málið fyrir Mannréttindadómstólinn

Gunnar Ingi Jóhanns­son

Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður Aðalsteins, segir niður­stöðu Hæstaréttar vonbrigði þó hún hafi ekki verið með öllu ófyrirséð, eftir niður­stöðu Lands­réttar. „Eins og fjallað er um í dómi Hæstaréttar þá töldum við þetta kæranlegt, hverju sem liði einhverjum fyrri fordæmum. Niður­staðan felur hins vegar í sér að skýrslu­takan af Aðalsteini hljóti að fara fram með einhverjum hætti. Tilgangur hennar er hins vegar orðinn afskaplega takmarkaður eftir mála­tilbúnað lögreglu og það sem fram hefur komið þar. Miðað við það sem komið hefur fram í málinu virðist manni ennþá minna tilefni nú en áður til þess að kalla Aðalstein og aðra blaðamenn sem málið varðar til skýrslu­töku.“

Spurður hvort til greina komi að vísa málinu til Mann­réttinda­dómstóls Evrópu segir Gunnar Ingi að ekki liggi fyrir ákvörðun þar um. „Ég tel það hins vegar gerlegt, þetta mál hefur byggt að verulegu leyti á dóma­framkvæmd Mann­réttinda­dómstólsins. Það væri því ekki óeðlilegt að bera það undir dómstólinn hvort þessi máls­meðferð standist, að ekki sé hægt að láta reyna á vafasamar rannsóknar­athafnir lögreglu, að dómstólar eigi ekki endur­skoðunar­vald um það og að það sé ekki einu sinni kæranlegt til Hæstaréttar. Að ekki sé hægt að fá endur­skoðun á frávísun á málinu á öðru dómstigi, það er vafasamt að það sé smrýmanlegt réttlátri máls­meðferð gagnvart sakborningi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár