Norskt vindorkufyrirtæki vill reisa vindmyllugarð á Íslandi

Norska vind­orku­fyrirtækið Zephyr hefur stofnað dóttur­fyrirtæki á Íslandi, Zephyr Iceland. Markmið fyrir­tækisins er að reisa vind­myllur og vindmyllu­garða hér á landi.

Norska vind­orku­fyrirtækið Zephyr hefur stofnað dótturfyrirtæki á Íslandi, Zephyr Iceland. Fyrir­tækið hyggst á næstunni verja verulegum fjármunum til rannsókna á vind­aðstæðum á Íslandi. Í frétta­tilkynningu frá fyrir­tækinu segir að markmiðið sé að reisa hér á landi vind­myllur og vindmyllu­garða og bjóða umhverfis­væna raforku á „hagkvæmu og samkeppnis­hæfu verði.“ 

Hafa fjárfest fyrir rúma 35 milljarða í Noregi

Fyrir­tækið Zephyr er í eigu þriggja norskra vatnsafls­fyrirtækja, Glitre Energi, Vardar og Østfold Energi. Þessi þrjú fyrirtæki eru öll í eigu norskra sveitarfélaga og fylkja. Framkvæmdastjóri Zephyr á Íslandi er Ketill Sigurjónsson, sem jafnframt er hluthafi í fyrir­tækinu.

Í tilkynningunni segir að móður­félag Zephyr hafi fjárfest fyrir meira en 35 milljarða íslenskra króna í vindafli í Noregi og hefur fyrir­tækið þegar reist meira en 300 MW af vindafli þar. Fyrir­tækið er nú að reisa þar nýjan 200 MW vindmyllu­garð og verður því senn með um 500 MW af vindafli í rekstri. Það jafn­gildir raforku­notkun um 75 þúsund norskra heimila.

Vísbendingar um að íslensk vindorka geti keppt við vatnsafl og jarðvarma

Fyrir­tækið segist hafa kannað íslenska raforku­markaðinn ítarlega, ásamt viðeigandi löggjöf og stefnu stjórnvalda. Morten de la Forest, stjórnar­formaður Zepher á Íslandi segir að fyrir­tækið sjái áhugaverð tækifæri til nýtingar vindorku á Íslandi og að sterkar vísbendingar séu um að íslensk vindorka verði samkeppnishæf við bæði vatnsafl og jarðvarma.

„Ísland býr yfir geysilega góðum vind­aðstæðum og jafnvel enn betri en eru í Noregi. Ég er afar ánægður með þá ákvörðun stjórnar Zephyr að Ísland verði fyrsti markaður okkar utan Noregs. Vindurinn á Íslandi, ásamt sveigjanleikanum sem íslenska vatnsafls­kerfið býr yfir, skapar Íslandi óvenju gott tækifæri til að nýta vindorku með ennþá hagkvæmari hætti en í flestum öðrum löndum,“ segir Olav Rommetveit, forstjóri norska Zephyr og stjórnarformaður Zephyr á Íslandi í tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár