Anonymous samtökin birta nöfn meðlima Ku Klux Klan

Hakkarar komust yfir nöfn þúsund meðlima Ku Klux Klan og birtu þau.

Samtökin Anonymous, lauslegt bandalag nafn­lausra hakkara, hafa deild upplýsingum um þúsund meinta meðlimi Ku Klux Klan (KKK) samtak­anna. Í tilkynningu frá Anonymous segir að nafn­birtingin sé liður í barátt­unni gegn rasisma.

Samkvæmt frétt BBC um málið inni­heldur listi hakk­aranna upplýsingar um Facebook-síður og nöfn þeirra sem hafa gengið í eða líkað við síður tengdar KKK á Facebook og Google+. Hakk­ararnir viðurkenna að þeir hafi ekki brotist inn í neinar tölvur til þess að taka sama listann, heldur eingöngu notast við„mannlega greind“.

Anonymous hafa gert KKK lífið leitt síðan síðarnefndu samtökin hótuðu mótmælendum í borginni Ferguson, í Missouri ríki í Banda­ríkjunum, ofbeldi. Mótmæli brutust þar út á ný í ágúst 2014 þegar ákæru­valdið tilkynnti að hvítur lögreglu­maður sem skaut Michael Brown, svartan ungan mann, yrði ekki ákærður. Í nóvember 2014 tóku hakkarar Anonymous meðal annars niður vefsíður tengdar KKK auk þess tekið var yfir tvo aðganga á Twitter.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár