Engar reglur til um notkun stjórnvalda og stofnana á samfélagsmiðlum

Stjórn­völd og rík­is­stofn­anir geta úti­lokað ein­staka aðila frá því að taka þátt í umræðum á sam­fé­lags­miðlum þeirra. Reglur um notkun þeirra eiga að liggja fyrir í haust.

Facebook-síða forsætisráðuneytisins.
Facebook-síða for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Mynd: Skjáskot/Facebook

Ekki hafa verið settar sér­stakar reglur um notkun stjórn­valda og rík­is­stofn­ana á sam­fé­lags­miðlum og umræðum sem þar fara fram. For­sæt­is­ráðu­neytið hyggst hins vegar vinna slíkur reglur fyrir ráðu­neyti og á þeirri vinnu að vera lokið næsta haust.

Þetta kemur fram í svari Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Helga Hrafns Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, um notkun stjórn­valda og rík­is­stofn­ana á sam­fé­lags­miðlum.

Hægt að „blocka“ einstaka aðila

Helgi vildi líka fá að vita hvaða rétt almennir borg­arar hefðu til að tjá sig á opnum sam­fé­lags­miðla­svæðum stjórn­valda og rík­is­stofn­ana og hvort að þeim væri heim­ilt að meina ein­stökum net­not­endum að tjá sig á slíkum sam­fé­lags­miðla­svæðum með því að eyða ummælum þeirra eða með því að úti­loka þá, eða „blocka“ eins og það kall­ast á ensku.

Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur fram að það sé hægt að eyða athuga­semdum og úti­loka ein­staka aðila. „Kjósi stjórn­vald að nýta sér sam­fé­lags­miðil til upp­lýs­inga­gjafar eða sam­skipta við borg­ar­ana verður hann að gæta þess að notkun hans á fram­an­greindum still­ing­ar­mögu­leikum stríði ekki gegn sjón­ar­miðum um jafn­ræði borg­ara, tján­ing­ar­frelsi þeirra, frið­helgi einka­lífs og með­al­hóf. Ekki er þó unnt að úti­loka að sú staða geti komið upp að stjórn­valdi verði talið rétt að eyða efni, ein­stökum athuga­semdum og ummælum sem sett hafa verið inn á slíkar síður ef efnið telst óvið­ur­kvæmi­legt eða æru­meið­andi. Við slíkar aðgerðir hvílir sú skylda á stjórn­valdi að gæta var­færni og með­al­hófs og beita væg­ari úrræðum séu þau tæk og leið­beina aðila. Ekki er heldur hægt að úti­loka, t.d. í fram­haldi af ítrek­uðum æru­meið­andi ummælum til­tek­ins ein­stak­lings, að rétt­mætt geti talist, eftir atvikum að und­an­geng­inni máls­með­ferð, að honum verði meinað að setja efni á síðu stjórn­valds.“

Almennur fyrirvari á Facebook

Helgi spurði einnig um hvaða skyldur hvíli á stjórn­völdum og rík­is­stofn­unum til að með­höndla og svara erindum borg­ara sem berst gegnum sam­fé­lags­miðla, ýmist með einka­skila­boðum eða á svæði sem almenn­ingur hefur aðgang að.

Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins segir að það hafi haft almennan fyr­ir­vara á fés­bók­ar­síðu ráðu­neyt­is­ins um að kjósi not­endur síð­unnar að koma á fram­færi form­legu erindi til ráðu­neyt­is­ins skuli slík erindi send á póst­fang ráðu­neyt­is­ins. „Með þessu hefur ráðu­neytið áréttað að það lítur ekki svo á að fés­bók­ar­síðan sé opin­ber gátt fyrir slík erindi. Á hinn bóg­inn er það meg­in­regla íslensks stjórn­sýslu­réttar að stjórn­sýslan sé óform­bundin í þeim skiln­ingi að almennt eru ekki gerðar kröfur um að erindi skuli ber­ast stjórn­valdi á til­teknu formi, t.d. skrif­lega fremur en munn­lega, í bréf­pósti fremur en tölvu­pósti eða á sér­stöku eyðu­blaði fremur en í óstöðl­uðu bréfi. Krafa af hálfu stjórn­valds um til­tekið form sam­skipta umfram önnur verður almennt að byggj­ast á sér­stakri laga­heim­ild. Á grund­velli skráðra og óskráðra reglna um leið­bein­ing­ar­skyldu og rann­sókn­ar­reglu ber stjórn­valdi að leið­beina aðila og aðstoða við að koma máli hans á fram­færi. Í almennum fyr­ir­vara sínum áréttar ráðu­neytið að ekki sé um opin­bera gátt fyrir form­leg erindi að ræða en leið­beinir jafn­framt not­endum um réttan far­veg til að koma slíkum erindum á fram­færi, þ.e. á póst­fangi ráðu­neyt­is­ins. Með því verður að telja að skyldur ráðu­neyt­is­ins sam­kvæmt skráðum og óskráðum reglum stjórn­sýslu­rétt­ar­ins séu upp­fylltar, m.a. fram­an­greind leið­bein­ing­ar­skylda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár