Brynjar aðstoðar Jón

Brynjar Níelsson fyrr­verandi þingmaður hefur verið ráðinn aðstoðar­maður Jóns Gunnars­sonar innan­ríkis­ráðherra.

Brynjar Níelsson verður nýjum innanríkisráðherra til aðstoðar.
Brynjar Níelsson verður nýjum inn­an­rík­is­ráð­herra til aðstoðar. Mynd: Bára Huld Beck

Brynjar Níelsson, fyrr­verandi þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, hefur verið ráðinn aðstoðar­maður Jóns Gunnars­sonar, innan­ríkis­ráðherra. Frá þessu segir á vef stjórnar­ráðsins í dag, en fjöl­miðlar höfðu einnig áður greint frá ráðningunni.

Brynjar er lögfræðingur að mennt, en hann lauk embættis­próf í lögfræði HÍ 1986 og öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir héraðs­dómstólum árið 1989 og Hæstarétti árið 1998. Hann var fulltrúi yfir­borgar­fógetans í Reykjavík 1986–1991 og hefur rekið eigin lögmanns­stofu síðan 1991. Brynjar var svo einnig formaður Lögmanna­félags Íslands 2010–2012.

Þekktastur er hann þó fyrir störf sín á þingi, en þar hafði hann setið óslitið frá því árið 2013 sem alþingis­maður Reykja­víkur­kjördæma, þar til hann náði ekki inn á þing í kosningunum í september.

Jón Gunnarsson hefur ráðið sér tvo aðstoðar­menn, en í gær var tilkynnt að Hreinn Loftsson, sem áður var aðstoðar­maður Áslaugar Örnu Sigurbjörns­dóttur í dómsmála­ráðuneytinu, yrði Jóni til aðstoðar. Nú hefur Brynjar bæst í hópinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár