Myndband: Frönsk sjónvarpsstöð ræddi við Kouachi og Coulibaly

Franska sjónvarps­stöðin BFMTV náði tali við Cherif Kouachi, annan bræðranna sem frömdu árásina á höfuð­stöðvar Charlie Hebdo á fimmtudag þar sem tólf manns voru myrtir, í síma á meðan að hann og bróðir hans héldu manni í gíslingu í lítilli prentsmiðju skammt frá París. Frétta­maður stöðvarinnar, Igor Sahiri, ræddi við Kouachi í gærmorgun. Í samtalinu segir Cherif Kouachi að bræðurnir séu verndarar spámannsins Múhammeðs og að AL Kaída í Jemen hefði sent þá.

Bræðurnir voru báðir drepnir í áhlaupi lögreglu síðdegis í gær, föstudag. Samtímis var ráðist inn í verslun í austur­hluta Parísar, sem rekin er af gyðingum, þar sem önnur gíslataka var í gangi. Þar höfðu Amedy Coulibaly og Hayat Boumeddiene tekið minnst sex gísla. Coulibaly er talinn hafa myrt lögreglu­konu daginn áður og hafði hótað að myrða gísla sína ef reynt yrði að handsama Kouachi bræður. Coulibaly var drepinn í áhlaupi lögreglu en hann hafði áður drepið fjóra gísla. Því hafa alls 17 manns látist í hryðjuverka­árásum í París undan­farna daga. Boumeddiene er enn leitað.

Frétta­stöðin ræddi líka við Coulibaly skömmu áður en hann var drepinn. Hann sagði meðal annars að hann og Kouachi bræðurnir hefði „samstillt“ aðgerðir sínar.

Hægt er að sjá upptöku af samtölum BFMTV við mennina hér að neðan.

https://www.youtube.com/watch?v=6MDz2yaf-9k

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár