Ekki oft sem ráðuneyti vari Alþingi við hagstjórnarmistökum

Þingmaður Samfylkingar gagnrýnir að meirihluti efnahags- og viðskipta­nefndar hafi ekki tekið tillit til varnaðar­orða fjármála­ráðuneytisins um fram­lengingu „Allir vinna“. Formaður nefndarinnar segir „ósann­gjarnt“ að horfa bara á útgjalda­hlið átaksins.

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingar.
Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ingar. Mynd: Bára Huld Beck

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar spurði Guðrúnu Hafsteins­dóttur formann efnahags- og viðskipta­nefndar Alþingis að því á Alþingi í dag hvernig stæði á því að meirihluti nefndarinnar hefði ekki brugðist með neinum hætti við þeim „þungu og afgerandi viðvörunar­orðum“ sem skrif­stofa skatta­mála í fjármála- og efnahags­ráðuneytinu hefði beint til þingsins hvað varðar fram­lengingu úrræðis sem nefnist Allir vinna.

Í breytingar­tillögu meirihluta nefndarinnar við svokallað bandorms­frumvarp sem lagt var fram samhliða fjár­lögunum er lagt til að úrræðið verði framlengt út ágúst­mánuð, en þó með ákveðnum breytingum sem draga aðeins úr umfanginu, eins og Kjarninn fjallaði um skömmu fyrir jól.

Skrif­stofa skatta­mála í fjármála- og efnahags­ráðuneytinu mælti hins vegar fremur afgerandi gegn því að úrræðið, sem felur í sér fulla endur­greiðslu virðis­aukaskatts af ákveðnum tegundum útseldrar vinnu, yrði framlengt í þeirri mynd sem tekin var upp eftir að kórónu­veiran fór að láta á sér kræla.

Jóhann Páll spurði að því á Alþingi í morgun hvernig stæði á því að ekki hefði verið tekið tillit til þeirra viðvörunar­orða sem sett voru fram af hálfu fjármála- og efnahags­ráðuneytisins í nefndar­áliti meirihlutans og rifjaði upp að það væri mat ráðuneytisins að fram­lenging Allir vinna væri hreinlega óráðleg.

„Að mati ráðuneytisins er fram­lengingin til þess fallin að ýta undir þenslu, hún raskar jafnræði á milli atvinnu­greina, grefur undir skilvirkni virðisauka­skatt­kerfisins, kostar á áttunda milljarð króna á næsta ári og torveldar það verkefni að draga úr halla­rekstri ríkis­sjóðs og halda aftur af verðbólgu. Svo benti ráðuneytið líka á það hefur ekki verið sýnt fram á að úrræðið sporni gegn svartri atvinnu­starfsemi eða stuðli að betri skatt­skilum, það liggja ekki fyrir neinar greiningar á þessu,“ sagði Jóhann Páll.

Til viðbótar því sem þing­maðurinn nefndi má nefna að í minnis­blaðinu frá ráðuneytinu er þess getið að Skatturinn hefði sett mikla vinnu í að afgreiða þær yfir hundrað þúsund endur­greiðslu­beiðnir sem borist hafa vegna úrræðisins frá því í mars 2020 – og að ráðuneytið velti því upp hvort tíma starfs­manna Skattsins væri ef til vill betur varið í skatt­eftirlit.

Jóhann Páll bað um útskýringar frá Guðrúnu á því að hvaða leyti meirihluti nefndarinnar væri ósammála því sem fram kom í minnis­blaðinu frá fjármála- og efnahags­ráðuneytinu, sem og á því hvers vegna ekki væri brugðist við innihaldi minnis­blaðsins með neinum hætti í nefndar­álitinu. Þing­maðurinn nefndi að það væri ekki oft sem ráðuneyti teldi sig knúið til þess að beinlínis vara Alþingi við hagstjórnar­mistökum með þeim hætti sem fjármála- og efnahags­ráðneytið hefði gert í þessu máli.

Byggingariðnaðurinn hafi tekið á sig fyrri högg

Guðrún svaraði því til að Allir vinna hefði verið við lýði í mjög langan tíma í íslensku samfélagi og fullyrti að úrræði hefði skilað ávinningi í barátt­unni gegn svartri atvinnu­starfsemi í landinu. Hún sagði að það væri enn slaki í byggingar­iðnaði á Íslandi og að þegar hefði gefið á bátinn í íslensku efnahags­lífi hefði mannvirkja­geirinn verið sá geiri sem hefði þurft að bera mjög þungar byrðar.

„Við þekkjum það öll frá efnahags­áfallinu sem varð hér í kjölfar banka­hrunsins þá varð það högg sem byggingar­geirinn fékk á sig gríðarlegt og hefur hann varla borið sitt barr síðan,“ sagði Guðrún. Hún nefndi svo aftur að úrræðið hefði spornað gegn svartri atvinnu­starfsemi – það væri „óyggjandi“ að ávinningur væri af því að þessi vinna væri gefin upp, í stað þess að viðskiptin færu fram utan skatt­kerfisins.

Jóhann Páll steig aftur í pontu og sagði að Guðrún virtist frekar vera að tala „út frá tilfinningu um hvernig hlutirnir séu“ fremur en gögnum, en ráðuneytið hefði byggt álit sitt á. Hann benti síðan á að áður en endur­greiðslu­hlutfallið var fært upp í 100 prósent hefðu endur­greiðslur numið 60 prósentum og að ekki hefði verið með neinum hætti sýnt fram á það að það hefði aukið skattskil að færa hlut­fallið upp í 100 prósent.

Guðrún sagði að nefndin hefði saknað þess að fá að sjá frá ráðuneytinu útreikninga á tekju­hliðinni, en ráðuneytið hefði eingöngu fært fram útreikninga á útgjalda­hliðinni, eins og það komi ekkert inn til ríkisins vegna þessa úrræðis.

„Okkur hættir til að gleyma því að það að öll vinna sé gefin upp til skatts, þá skilar hann sér til ríkisins, það er greitt útsvar, það kemur tekju­skattur, það eru tekjur á móti. Það er ósann­gjarnt að horfa bara á annan öxulinn hér og sjá bara útgjalda­hliðina, það koma vitaskuld tekjur inn á móti,“ sagði Guðrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár