Ítrekar ekki ábendingu um auglýsingu sendiherraembætta

Rík­is­end­ur­skoðun seg­ist ekki sjá til­gang í því að ítreka ábend­ingu um skipan í stöður sendi­herra en minnir á sjón­ar­mið um gagn­sæi, jafn­ræði og vand­aða stjórn­sýslu við ráðn­ingu rík­is­starfs­manna.

Sendiráðsbústaðurinn í Washington.
Sendi­ráðs­bú­stað­ur­inn í Washington. Mynd: Google Maps.

Rík­is­end­ur­skoðun ítrekar ekki ábend­ingu til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um aug­lýs­inga­skyldu fyrir stöðu sendi­herra, þar sem ráðu­neytið lýsti sig ósam­mála því að afnema bæri und­an­þágu þar um.

Í nýrri eft­ir­fylgn­is­skýrslu bendir stofn­unin á að brugð­ist hafi verið við fjórum af fimm ábend­ingum hennar um rekstur og starf­semi sendi­skrif­stofa með við­un­andi hætti.

Í skýrsl­unni segir að einnig sé litið til þess að frum­varp þess efnis að aug­lýsa eigi stöður sendi­herra hafi ekki hlotið braut­ar­gengi á Alþingi. „Því sér Rík­is­end­ur­skoðun ekki til­gang með því að ítreka þá ábend­ingu en minnir á að aug­lýs­inga­skylda starfa stuðlar að auknu gagn­sæi, jafn­ræði og vand­aðri stjórn­sýslu.“

Aðrar ábend­ingar, sem brugð­ist hefur verið við, lutu að því að koma þyrfti á sér­stökum fjár­laga­lið fyrir fast­eigna­við­skipti sendi­skrif­stofa, ljúka úttekt á erlendum fast­eignum ráðu­neyt­is­ins, setja við­mið um lág­marks­mönnun sendi­skrif­stofa og stuðla að jafnri stöðu kynj­anna á sendi­skrif­stofum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár