Karl skilaði hestunum ekki til þrotabús

Karli Wernerssyni var gert að skila hrossa­ræktar­búinu Feti til þrotabús Háttar. Fáeinum dögum áður voru helstu eignir félagsins, 174 hross, færð yfir á annað félag í hans eigu. Aðeins dauð hross og folöld fædd á þessu ári voru skilin eftir í félaginu.

Fjár­festingar­félag Karls Wernerssonar var úrskurðað gjald­þrota í apríl 2012. Skipta­stjóri félagsins, Jóhann Baldursson, segir í samtali við Stundina að hann muni skoða hvort óeðlilega hafi verið staðið að milli­færslu eigna úr hrossa­ræktar­búinu Feti yfir á önnur félög, sem eru í eigu Karls.

Karl keypti hrossa­ræktar­búið Fet, á Suður­landi, í gegnum Hátt fyrir ríflega hálfan milljarð króna árið 2007. Áður en félagið Háttur var tekið til gjaldþrota­skipta gerði Karl samkomulag um skulda­uppgjör sem fólst í því að hann gekk að veði í öllum eignar­hlutum hrossa­búsins.

Þrotabú Háttar fór fram á að samkomu­laginu yrði rift. Héraðs­dómur Suður­lands féllst á það í lok september og Karli var gert að skila hrossa­búinu. Fáeinum dögum fyrir úrskurð héraðs­dóms voru 174 hross hinsvegar flutt frá hrossa­ræktar­búinu Feti yfir á félagið SAMK. ehf. sem er alfarið í eigu Karls. 

Ekki einungis hross voru færð úr Hrossa­ræktar­búinu FET því samkvæmt fasteigna­skrá eignaðist Faxar ehf. jörðina og öll hús á eigninni í upphafi mánaðarins. Félagið er alfarið í eigu Karls. Því má segja að litlu hafi verið skilað.

Í samtali við Stundina segir Karl að milli­færsla hestanna á milli félaga eigi sér eðlilega skýringu. Hrossin hafi verið tekin upp í skuld. „Skýringin er sú að hrossa­rækt er mjög erfiður búskapur, sérstak­lega eftir hrossaflesuna en þá hrundi sala á hrossum. Ég hef rekið þetta hrossaræktarbú í mörg ár með neikvæðum árangri. Ég fjármagna tapið úr eigin vasa. Það var útséð að þetta fyrirtæki gæti ekki greitt skuldirnar þannig að það var ákveðið að fara í skulda­uppgjör. Þessar skuldir urðu til frá árinu 2009 og hafa safnast upp öll þessi ár,“ segir Karl.

Hann segir að lykil­starfsmenn hrossa­búsins munu á næstunni eignast hlut í eignarhalds­félagi hrossanna, SAMK. Það sé vel mögulegt að dómi héraðs­dóms verði áfrýjað.

Hesta­fréttir fjölluðu í gær um eigenda­skiptin á hrossunum. Í frétt Hesta­frétta kemur fram að um verðmæt hross er að ræða og að flest hross sem skilin hafi verið eftir hjá hrossa­ræktar­búinu Fetu hafi ýmist verið dauð eða folöld fædd á þessu ári. Þar segir einnig að heiðurs­verðlauna­stóð­hesturinn Vilmundur frá Feti sé nú í eigu SAMK eftir þennan gjörning. Samkvæmt heimildum Stundarinnar nemur heildar­verðmæti hrossanna hundruðum milljóna króna.

Skiptum Háttar er ekki lokið. „Skipta­stjóri mun kanna þessar hreyfingar á eignar­haldi,“ segir Jóhann, skipta­stjóri í samtali við Stundina. 

Vilmundur frá Feti
Vilmundur frá Feti Vilmundur er heiðurs­verðlauna­stóðhestur.

Karl var mjög umsvifa­mikill á árunum fyrir hrun en hann er fyrr­verandi stjórnar­formaður Milestone. Hann er enn eigandi Lyf og heilsu. Í síðastliðnum apríl var félagi Karls, Aurláka, gert að greiða þrotabúi Milestone tæpan milljarð vegna Lyf og heilsu, sem var selt út úr Milestone rétt fyrir hrunið árið 2008 til Aurláka. Árið 2009 varð Milestone gjald­þrota og þrotabú félagsins taldi að greiðslan vegna Lyf og heilsu hafi ekki verið fullnægjandi. Þrotabú taldi að markmið sölunnar hafi verið að koma Lyf og heilsu undan gjald­þroti Milestone. Héraðs­dómur Reykja­víkur dæmdi þrota­búinu í vil og var Karli gert að greiða mismuninn eða 970 milljónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár