Dæmdir í 220 ára fangelsi fyrir að selja hass í Kristjaníu

Það er óhætt að segja að undan­farið hafi hassið svifið yfir vötnum hjá Héraðs­dómi Kaupmanna­hafnar. Frá áramótum hafa 83 verið dæmdir til fangelsis­vistar í umfangs­mesta hassölumáli í sögu Danmerkur. Flestir dómanna féllu í liðinni viku.

Danska lögreglan tók daginn snemma 13. mars í fyrra. Í rauða­bítið þann morgun handtóku laganna verðir áttatíu og fjóra menn, flesta í Kaupmanna­höfn og nágrenni. Á fréttamanna­fundi sem lögreglan hélt um hádegisbil þennan sama dag kom fram að hand­tökurnar hefðu átt sér langan aðdrag­anda og verið mjög vel undir­búnar. Fjölmennt lögreglulið tók þátt í aðgerðinni, sem hjá lögreglunni gekk undir nafninu Norður­ljósið. Á fréttamanna­fundinum var frá því greint að alls hefði lögreglan gert húsleitir á 150 stöðum í Kaupmanna­höfn og nágrenni þennan morgun. Ekki hefur verið upplýst um fjölda lögreglu­manna sem voru að störfum þennan morgun en danskir fjöl­miðlar telja að þeir hafi verið vel á annað þúsund. Hinir handteknu áttu það allir sameiginlegt, að mati lögreglunnar, að tengjast sölu á hassi í frístaðnum Kristjaníu.

Margra ára aðdragandi


Á áður­nefndum frétta­manna­fundi kom fram að lög­reglan hefði árum saman fylgst með „starf­sem­inni“ í Krist­janíu. Það er á margra vit­orði að hass hefur lengi verið selt í Krist­janíu en lög­regla og yfir­völd hafa lengst af látið það að mestu afskipta­laust enda að lang­mestu leyti smá­kaup­menn sem hafa sinnt þessum við­skiptum. Fyrir nokkrum árum fóru hins­vegar svokölluð mót­or­hjóla­sam­tök að troða sér inn á þennan markað. Ástæð­urnar eru einkum þær að lög­reglan hefur um ára­bil þrengt að (vafa­samri) starf­semi þeirra en ekki þó síður að margir koma í Krist­janíu (fjórði fjöl­sótt­asti ferða­manna­staður lands­ins) og af svæð­inu fer það orð að þar sé fleira til sölu en filt­erslaus Camel.

Þarna var því eftir miklu að slægjast en lögregla telur að árið 2012 hafi verið selt hass fyrir rúman milljarð danskra króna (ca. 20 milljarða íslenska). Þetta eru miklir peningar, það eru mótorhjóla­samtökin fyrir löngu búin að koma auga á og hafa reynt að sölsa undir sig þennan markað og bola burt smákaupmönnunum sem fyrir voru. Þrátt fyrir að íbúar Kristjaníu hafi ekki verið hrifnir af þessari „þróun“ hafa þeir lítið getað aðhafst. Flestir íbúar frísvæðisins kæra sig lítt um þessi „mótorhjóla­samtök“ en vilja bara fá að lifa sínu lífi. Vita sem er að vélhjóla­gengjunum fylgja iðulega átök og illindi og rokk­ararnir, eins og þeir eru kallaðir, engar friðar­dúfur. Þess vegna fögnuðu margir „Kristjanittar“ því að lögreglan beindi sjónum sínum að svæðinu.

Lögregla haldlagði gríðarlegt magn fíkniefna í aðgerðum sínum í Kristjaníu þann 13. mars á síðasta ári.

Sölumenn, milliliðir, peningamenn


Í sept­em­ber 2012 var stofnuð sér­stök deild innan lög­regl­unnar, Task Force Pusherstreet, kennd við versl­un­ar­göt­una í frí­staðnum. Það var gert þegar yfir­stjórn lög­regl­unnar varð ljóst hve gríð­ar­lega stórt mál var um að ræða. Síðan þessi sér­deild var stofnuð hafa um þrjú þús­und manns hlotið dóma (nær alltaf sektir) fyrir að kaupa hass. Jafn­framt hefur sér­deildin frá stofnun lagt hald á hass að and­virði 180 millj­óna króna (ca. 3,6. millj­arða ísl. króna) á sölu­stöð­unum í Krist­janíu.

Lögregla haldlagði gríðarlegt magn fíkniefna í aðgerðum sínum í Kristjaníu þann 13. mars á síðasta ári.
Lögregla hald­lagði gríð­ar­legt magn fíkni­efna í aðgerðum sínum í Krist­janíu þann 13. mars á síð­asta ári.

Lögreglan hefur beitt margs konar aðferðum meðal annars hlerað síma, fylgst með ferðum fólks, óeinkennisklæddir lögreglu­þjónar farið um Kristjaníu­svæðið og fylgst með sölu­stöðunum mánuðum saman. Í þeim áttatíu og fjögurra manna hópi sem hand­tekinn var 13. mars í fyrra voru sölumenn (sem kannski ætti frekar að kalla afgreiðslu­menn), milli­liðir og peninga­menn sem staðið hafa á bakvið þessa starfsemi og hirt stærstan hluta ágóðans.

Dómarnir


Alls hafa fallið 83 dómar í þessu stærsta hassölu­máli Dan­merkur. Lang­flestir, eða 65, í lið­inni viku en hinir á síð­ast­liðnum tveimur mán­uðum. Einn sem ákærður hafði verið lést í fang­elsi fyrir nokkrum vikum, áður en dómur í máli hans féll. Dómarnir eru mis­þungir, sá sem þyngstan dóm hlaut á að afplána fimm og hálft ár. Átta hinna dæmdu áfrýj­uðu á staðnum, hinir tóku sér lög­boð­inn umhugs­un­ar­frest. Fulltrúi ákæru­valds­ins lýsti ánægju með nið­ur­stöð­una og nefndi sér­stak­lega að tek­ist hefði að sýna fram á sök margra svo­kall­aðra „bak­við­manna,“ það er að segja þeirra sem stjórn­uðu og skipu­lögðu þessa umfangs­miklu starf­semi.

Ár liðið frá handtökunum


Rúmt ár leið frá hand­tök­unum þangað til dómar féllu. Þótt það kunni að virð­ast langur tími segja tals­menn lög­regl­unnar að miðað við umfangið sé eitt ár í raun mjög skammur tími. Það sé meira en að segja það að yfir­fara og rann­saka gögn í slíku máli þar sem hund­ruð manna koma við sögu. Lög­reglan hefur ekki viljað greina nákvæm­lega frá öllu því sem hald var lagt á, segir að þrátt fyrir að dómar séu fallnir sé margt fleira í gögn­unum sem lög­reglan hefur í sinni vörslu.

Hassið enn til sölu í Pusher Street


Yfir­maður Task Force Pusherstreet sagði í við­tali fyrir nokkrum dögum að því færi fjarri að búið væri að upp­ræta hass­við­skiptin í Krist­janíu, þar væri enn mikið verk óunnið og sér­deildin myndi starfa áfram. Það væri hins­vegar ljóst að glæpa­gengin hefðu orðið fyrir þungu höggi.

Lögreglu­menn á vettvangi í Kristjaníu í mars­mánuði 2014.

Lögreglumenn á vettvangi í Kristjaníu í marsmánuði 2014.
Lög­reglu­menn á vett­vangi í Krist­janíu í mars­mán­uði 2014.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár