Gefa ekki kost á sér í landsliðið vegna þátttökukostnaðar

Hækkandi verð­lag á keppn­is­ferðum Íshokkísam­bands Íslands hefur haft þau áhrif að lands­liðs­menn ÍHÍ þurfa að greiða 45.000 krónu þátt­töku­gjald. „Strákar í A-lands­liði karla hafa lýst því yfir að þeir muni ekki gefa kost á sér í lands­liðið út af þessum sökum, “ segir Helgi Páll Þórisson, for­maður ÍHÍ.

Söfnuðu saman fjármagninu
Söfnuðu saman fjár­magn­inu A-lands­lið kvenna tók þá ákvörðun að safna fjár­magn­inu sem til þurfti í sam­ein­ingu sem lið. Mynd: Íshokkísamband Íslands

Í mars sam­þykkti stjórn Íshokkísam­bands­ins Íslands (ÍHÍ) kostn­að­ar­þátt­töku karla- og kvenna­lands­liða sam­bands­ins. Hver liðs­maður mun greiða 45.000 krónur þetta árið. „Það hefur verið þannig und­an­farin ár að A-lands­liðs­fólkið hefur ekki verið að greiða ferða­kostnað eða annan kostnað sem er í kringum lands­liðið,“ segir Helgi Páll Þórisson, for­maður ÍHÍ, meðal ann­ars vegna góðrar fjár­hags­stöðu Íshokkísam­bands­ins und­an­farin ár.

Á sein­asta ári fóru liðin í keppn­is­ferðir sem kost­uðu tölu­vert meira en upp­haf­legar áætl­anir gerður ráð fyrir, „sem gerir það að verkum að fjár­hags­staða sam­bands­ins í dag er bara veru­lega slæm“. Helgi segir að þessar 45.000 krónur sem hver liðs­maður á að greiða sé rétt tæp­lega 30 pró­sent af ferða­kostn­aði sem fellur á hvern leik­mann.

Kvenna­lands­liðið mun keppa í Andorra í byrjun apríl og karla­lands­liðið er á leið til Serbíu seinni hluta apríl. Kostn­að­ar­þátt­taka leik­mann­anna fer upp í kostnað við þessar ferðir. 

„Miðað við umfangið hjá okkur í Íshokkísam­band­inu þá eru …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SS
    Sveinn Sveinbjörnsson skrifaði
    Í feb. 2024 fóru landsliðin í bogfimi á EM í bogfimi til Króatíu og þurfti hver þáttakandi að borga 200.000 plús með sér.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár