Segir frumvarp um „misnotkun“ stera ekki fjalla „að neinu leyti“ um þá sem neyta stera

Stera­frumvarp Óttars Proppé verður lagt fram í mars.

Fyrir­hugað frumvarp um misnotkun stera mun ekki fjalla „að neinu leyti“ um þá sem nota stera. Þetta er haft eftir Óttari Proppé heilbrigðis­ráðherra á Vísi.is. 

Eins og Stundin greindi frá fyrr í vikunni hyggst ráðherrann leggja fram „frumvarp til laga um misnotkun vefja­aukandi efna og stera“. Þetta kemur skýrt fram í þing­málaskrá ríkis­stjórnarinnar og er þar fullyrt að nauðsynlegt sé að leggja fram frumvarp sem spornar við slíkri misnotkun. Þá kemur fram að höfð verði hliðsjón af sambærilegri danskri löggjöf en þar í landi er tekið hart á stera­notkun einstaklinga.

Á Vísi.is er haft eftir óttari að stera­frumvarpið sé í vinnslu í ráðuneytinu. „Það fjallar ekki að neinu leyti um þá sem neyta umræddra efna. Tilgangur þess er að sporna við dreifingu og sölu þessara efna og sömuleiðis ólöglegri fram­leiðslu og innflutningi þeirra. Samráð verður haft við breiðan hóp hagsmuna­aðila við smíði frum­varpsins og er stefnt að því að birta drög að frum­varpinu á vef ráðuneytisins til umsagnar áður en það verður lagt fram á Alþingi.“ Þá kemur fram að toll­stjóri og lögreglan hafi óskað eftir því að lögfestar verði reglur á þessu sviði. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár