Nútíminn varð fyrir tölvuárás

Margir notendur fá „malware“ meldingu ef farið er inn á nutiminn.is. Atli Fannar telur að um sé að ræða bot-a sem ráðast á Wordpress-síður.

Einhverskonar tölvuárás hefur verið framkvæmd á íslensku veffrétta­síðuna Nútímann. Ef farið er inn á síðuna kemur upp melding um að síðan innihaldi „malware“ eða spilli­forrit. Einyrkinn Atli Fannar Bjarkason sem rekur síðuna vissi ekki af vanda­málinu þegar Stundin hafði samband. „Þetta er í Wordpress og það er mikið af sjálf­virkum botum sem ráðast á Wordpress-síður. Þetta gæti verið eitthvað þannig,“ segir Atli Fannar. Spilli­forrita meldingin virðist koma upp í sumum tölvum en öðrum ekki. Auk þess kemur meldingin ekki upp ef farið er inn á einstakar fréttir.

Samkvæmt meldingu Google Chrome kemur árásin frá yuumondovaggetafstreden.hecacquisitions.com og sagt að mögulegt sé að hættuleg forrit verði sett upp á tölvu ef farið er inn á vefsíðuna. 

Nútíminn hlaut verðlaun fyrir besta vefmiðillinn árið 2014 á Íslensku vefverðlaununum. Miðillinn hóf göngu sína síðastliðið haust en Atli Fannar hefur áður starfað sem frétta­stjóri á Frétta­blaðinu, ritstjóri Monitors og kosninga­stjóri Bjartrar framtíðar fyrir Alþingis­kosningar 2013.

MeldingHér má sjá skila­boðin.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár