Ísland í 27. sæti á lista World Economic Forum yfir samkeppnishæfni

Ísland er í 27. sæti á listanum yfir samkeppnis­hæfni þjóða samkvæmt nýút­kominni skýrslu Alþjóða­efnahags­ráðsins (World Economic Forum), The Global Competitiveness Report 2016-2017. Ísland færist upp um tvö sæti frá því í fyrra. Alls tóku 138 þjóðríki þátt í rannsókn ráðsins að þessu sinni.

Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu vegna útkomu skýrslunnar. „Vísitala Alþjóða efnahags­ráðsins er virtur mæli­kvarði á efnahagslíf þjóða víða um heim. Vísitalan er víðtæk og endur­speglar þá þætti sem segja til um fram­leiðni þjóða og vaxtar­möguleika þeirra. Rann­sóknin byggir á opinberum upplýsingum og könnun sem gerð er meðal stjórn­enda í atvinnu­lífinu. Nýsköpunar­miðstöð Íslands er samstarfs­aðili Alþjóða­efnahags­ráðsins á Íslandi og sá um framkvæmd könnunarinnar hér á landi,“ segir í frétta­tilkynningunni.

Áttunda árið í röð er Sviss í fyrsta sæti sem samkeppnis­hæfasta efnahagslíf heimsins. Mjótt er þó á munum Sviss, Singapore og Banda­ríkjanna. Þar á eftir koma Holland og Þýskaland sem hafa skipt um sæti síðan í fyrra. Einkunn Bretlands er reiknuð áður en landið tók hina frægu ákvörðun sína um Brexit. Indland er það land sem risið hefur hraðast, hækkar um 16 sæti síðan í fyrra og er nú í 39. sæti. 

Svíþjóð er í sjött sæti, hæst Norður­landa. Finnland er í tíunda sæti, Noregur í ellefta og Danmörk í tólfta sæti.

Nánar verður fjallað um skýrsluna og greininguna á Íslandi á næstu misserum, á vef Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár