Aðgengi almennings að fjárhagsupplýsingum ríkisins aukið

Búið er að opna vef­inn opn­ir­reikn­ingar.is þar sem hægf verður að nálg­ast yfir­lit yfir greidda reikn­inga úr bók­haldi ráðu­neyta. Vefurinn átti upp­haf­lega að opna í mars.

Það er fjármála- og efnahagsráðuneytið sem stendur að verkefninu. Benedikt Jóhannesson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Það er fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið sem stendur að verk­efn­inu. Benedikt Jóhann­es­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Aðgengi almenn­ings að fjár­hags­upp­lýs­ingum rík­is­ins hefur verið bætt með því að vef­ur­inn opn­ir­reikn­ingar.is hefur verið tekin í gagnið. Á honum er hægt að skoða yfir­lit yfir greidda reikn­inga úr bók­haldi ráðu­neyta nálægt raun­tíma. Vefurinn er upp­færður mán­að­ar­lega og fyrsti birt­ing­ar­mán­uð­ur­inn er ágúst 2017. Gert er ráð fyrir að stofn­anir í A-hluta rík­is­sjóðs komi inn í verk­efnið í áföngum. Þegar verk­efnið verður að fullu komið til fram­kvæmda nemur heild­ar­um­fang upp­lýs­inga á vefnum um 45 millj­örðum króna á ári.

Í frétt á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir: „Þá er unnið að því að birta mán­að­ar­legt bók­hald rík­is­ins, ráðu­neyta og stofn­ana með skýrum og mynd­rænum hætti. Með þeirri birt­ingu verður hægt að skoða gjöld og tekjur út frá ráðu­neytum, stofn­unum eða mál­efna­sviðum, allt niður á ein­stök verk­efni. Hægt verður að skoða raun­út­gjöld og bera saman við áætluð útgjöld í fjár­lögum árs­ins. Er sú birt­ing aukin þjón­usta við almenn­ing frá því að rík­is­reikn­ingur.is var opn­aður árið 2014, en þar er birt sund­ur­liðun á tekjum og gjöldum rík­is­ins eftir árum og nær birt­ingin aftur til árs­ins 2004.“

Átti að opna í mars

Rík­is­stjórnin greindi frá því í byrjun febr­úar að hún ætl­aði að stór­bæta aðgengi almenn­ings að fjár­hags­upp­lýs­ingum rík­is­ins, og myndi stíga stórt skref í þá átt um miðjan mars þegar vef­ur­inn opn­ir­reikn­ingar.is yrði opn­að­ur. Þar yrði hægt að nálg­ast greiðslu­upp­lýs­ingar um tvö hund­ruð stofn­ana.

Í til­kynn­ingu sagði:„Á vefnum munu árlega birt­ast á bil­inu 300-400 þús­und reikn­ingar vegna kaupa rík­is­ins á vörum og þjón­ustu. Hægt verður að leita að reikn­ingum á vefnum með ýmsum leið­um, t.d. út frá stofn­unum eða teg­und kostn­að­ar. Á vefnum verða enn­fremur birt skönnuð fylgi­skjöl með reikn­ing­um, en með því gengur Ísland lengra en önnur ríki sem hafa unnið svipuð verk­efn­i. Sér­stak­lega hefur verið hugað að örygg­is­málum og sjón­ar­miðum um per­sónu­vernd og sér­stakar síur koma í veg fyrir að við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar birt­ist, svo sem vegna lækn­is­heim­sókna, bóta eða launa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár