Munu birta 300 til 400 þúsund reikninga ríkisins opinberlega

Til stendur að opna vef­síðu á vegum rík­is­ins þar sem reikn­ingar 200 rík­is­stofn­ana verða gerðir öllum aðgengi­legir.

Rík­is­stjórnin hyggst stór­bæta aðgengi almenn­ings að fjár­hags­upp­lýs­ingum rík­is­ins, og mun stíga stórt skref í þá átt um miðjan mars þegar vef­ur­inn opn­ir­reikn­ingar.is verður opn­aður. Þar verður hægt að nálg­ast greiðslu­upp­lýs­ingar um tvö hund­ruð stofn­ana.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu, en málið var á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar í dag.

„Á vefnum munu árlega birt­ast á bil­inu 300-400 þús­und reikn­ingar vegna kaupa rík­is­ins á vörum og þjón­ustu. Hægt verður að leita að reikn­ingum á vefnum með ýmsum leiðum, t.d. út frá stofn­unum eða teg­und kostn­aðar. Á vefnum verða enn­fremur birt skönnuð fylgi­skjöl með reikn­ingum, en með því gengur Ísland lengra en önnur ríki sem hafa unnið svipuð verk­efni. Sér­stak­lega hefur verið hugað að örygg­is­málum og sjón­ar­miðum um per­sónu­vernd og sér­stakar síur koma í veg fyrir að við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar birt­ist, svo sem vegna lækn­is­heim­sókna, bóta eða launa,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Í fyrstu verða upp­lýs­ingar frá aðal­skrif­stofum ráðu­neyta aðgengi­legar á nýja vefnum, en í næstu áföngum verða stofn­anir í A-hluta rík­is­sjóðs hluti af kerf­inu. Stefnt er að því að verk­efnið verði að fullu komið til fram­kvæmda um ára­mótin.

Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra hefur áður greint frá þessum áformum stjórn­valda. Hann hefur sagt að umfang bók­halds­ins sem verður gert opin­bert sé um 50 millj­arðar króna á árs­grunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár