Sigurður Ingi sker upp herör gegn lóðabraski

Sigurður Ingi Jóhann­es­son inn­við­a­ráð­herra til­kynnti nú fyrir skömmu á Facebook-síðu sinni að hann hafi mælt fyrir frum­varpi sem felur í sér hvata fyrir lóð­ar­hafa til að hefja upp­bygg­ingu á íbúð­ar­hús­næði án tafa eins og deiliskipu­lag gerir ráð fyrir. Til­gangur frum­varps­ins er meðal ann­ars sá að draga úr lóða­braski sem Sigurður Ingi lýsti sem „ófor­svar­an­legu athæfi“

Sigurður Ingi Jóhannsson
Sigurður Ingi Jóhanns­son lagði fram frum­varp sem hann telur að muni draga úr lóða­braski Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra telur að stemma þurfi stigu við lóða­braski sem hefur við­geng­ist hér á landi árum saman. Í Facebook-færslu sem Sigurður Ingi birti nú fyrir skömmu sagði hann lóða­brask gjarnan leiða til hærra fast­eigna­verðs og auka verð­bólgu. Við­skiptin ein­kenn­ast af því að lóð­ar­reitir eru keyptir af ein­stak­lingum eða fyr­ir­tækjum sem sitji á þeim um tíma og selji síðan lóð­irnar á hærra verði. 

Inn­við­a­ráð­herra segir raunar að lóð­ar­reitir séu „keyptir á millj­arða króna af aðilum sem selja svo nokkrum vikum síðar á enn fleiri millj­arða til bygg­inga. Ein­stak­lingur sem kaupir íbúð á reit sem hefur lent í lóða­braski stendur uppi með ennþá hærra kaup­verð, þarf að taka enn hærra lán og afleið­ing­arnar verða enn hærra fast­eigna­verð sem setur þrýst­ing á verð­bólg­una. Ekki er hægt að kalla þetta annað en lóða­brask og hefur ekk­ert með hús­næð­is­ör­yggi fólks að gera.“

Í færsl­unni til­kynnti Sigurður Ingi að hann hafi mælt fyrir frum­varpi í vik­unni, „sem felur í sér skýran hvata fyrir lóð­ar­hafa til hefja upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis eins og deiliskipu­lag gerir ráð fyrir.“ Þetta sér gert til þess að vinda ofan af „þessu ófor­svar­an­lega athæfi,” að sögn Sigurðar. 

Verði frum­varpið sam­þykkt á þingi geta sveit­ar­fé­lög knúið lóð­ar­eig­endur til þess að hefja upp­bygg­ingu í sam­ræmi við sam­þykkt deiliskipu­lag.

Sigurður Ingi telur frum­varpið vera „eitt af fjöl­mörgum þáttum sem geta unnið að því ásamt öðru að koma jafn­vægi á hús­næð­is­mark­að­inn þar sem miklar sveiflur hafa verið á hús­næð­is­verði og bygg­ingu íbúð.“

Í frum­varp­inu sem lagt var fyrir þingið 26. jan­úar er sveit­ar­fé­lögum veitt laga­heim­ild til þess að geta tekið upp­bygg­ing­ar­heim­ildir lóð­ar­eig­enda til end­ur­skoð­unar ef fram­kvæmdir hefj­ast ekki innan fimm ára frá birt­ingu sam­þykkts deiliskipu­lags.

Sömu­leiðis myndu lögin veita sveit­ar­fé­lögum heim­ild til þess að kalla eftir skýr­ingum frá lóð­ar­höfum ef engin umsókn um bygg­ing­ar­á­form hefur borist innan til­skil­ins frests.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins kemur fram að breyt­ingin sé til þess fallið að veita sveit­ar­fé­lögum laga­heim­ild til að knýja á um fram­gang sam­þykkts deiliskipu­lags og tryggja að hraði upp­bygg­ing­ar­innar sé í sam­ræmi við hús­næð­is­þörf.

For­send­urnar baki frum­varp­inu er meðal ann­ars sá að frestur á upp­bygg­ingu felur í sér mik­inn kostnað fyrir sveit­ar­fé­lögin. Þá veldur seina­gangur við upp­bygg­ingu miklum óþæg­indum fyrir fólk sem býr í nágrenni við lóðir sem til stendur að byggja á.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Björg Sverrisdóttir skrifaði
    Hvers vegna 5 àr? Væri ekki nær hámark 2 ár ?
    Það á hætta að teygja á framkvæmdum og byrja strax!
    0
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Sýndarmennska hjá Sigurði því engin eru viðurlaugin né refsingin.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár