Norðmenn enn hræddir - valdatafl Sádí-Araba?

Óvissa er það sem helst kemur upp í hugann þegar Norðmenn hugsa til komandi árs í efnahags­legu tilliti og áréttaði Erna Solberg, forsætis­ráðherra Noregs, þessa sýn á blaðamanna­fundi síðastliðinn fimmtudag. „Það er mikil óvissa framundan og við þurfum að taka afleiðingunum af því,“ sagði Solberg og áréttaði að erfiðir tímar gætu verið framundan hjá fólki og fyrir­tækjum í byrjun árs 2015.

Vandamál í Noregi tengjast mörgum Íslendingum sem búa þar en þeim hefur fjölgað hratt á undan­förnum árum. Samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands búa nú um 8.700 Íslendingar í Noregi en þeir voru 3.800 árið 2008.

Úr 22 krónum í 17


Eftir að norska krónan féll um átta pró­sent á einum degi, síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, hefur hún lít­il­lega styrkst. Hræðsla hefur þó verið sýni­leg á mörk­uðum, að því er segir í umfjöllun Dagens Nær­ingsliv. Gengi krón­unnar núna er um níu krónur fyrir hverja evru, eða sem nemur því að um sautján íslenskar krónur jafn­gildi einni norskri krónu. Stutt er síðan þessi tala var í tæp­lega 22 krónum.

Norðmenn búa þó við sterka innviði og hafa hinn risavaxna olíusjóð að mestu (95%) í ávöxtun í eignum utan Noregs sem bundnar eru í erlendum myntum. Fall krónunnar heima fyrir hefur því ekki svo miklar afleiðingar fyrir þann sjóð. Hins vegar getur það haft alvarlegar afleiðingar fyrir norska hagkerfið ef verð­fallið á olíu heldur áfram, en blikur eru á lofti í þeim efnum.

Valdatafl?


Anatole Kaletsky, gamal­reyndur hagfræðingur og pistla­höfundur The Economist, segir í pistli sem hann birti á vef Reuters í gær að Sádí-Arabía sé mikill áhrifa­valdur bak við tjöldin og að ekki sé útilokað að hin mikla lækkun á olíu að undan­förnu, sem flestir grein­endur á markaði spáðu ekki fyrir um, tengist valda­tafli OPEC ríkjanna þar sem Rússar hafa nú verið færðir skör neðar. Í greiningu sinni segir hann að olían geti vel lækkað enn meira, jafnvel niður í 20 Bandaríkja­dali á fatið, en verðið nú er tæplega 60 dalir og hefur það lækkað um tæplega 50 prósent frá því í júlí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár