Adrenalínfíkill kveður NATÓ

Anders Fogh Rasmussen stýrði sínum síðasta leiðtoga­fundi sem framkvæmda­stjóri Atlantshafs­banda­lagsins NATO á dögunum. Hann hefur sett svip sinn á NATO og persónu­gert upplýsinga­stefnu stofnunarinnar án fordæma.

Ráðgjafar hans hafa lagt þunga áherslu á að Anders Fogh komi fyrir sjónir sem andlit stofnunarinnar út á við. Hann sé sterkur leiðtogi hjá NATO en jafnframt athafnasöm persóna sem hiki ekki við að deila jákvæðum sögum úr einkalífi sínu með fylgjendum á samfélags­miðlum.

Vinsælasti leiðtoginn


Í stað þess að taka fyrir þung og erfið álita­mál hefur ­Anders Fogh mýkt ímynd stofn­un­ar­innar svo um munar. Þetta hefur gert hann að vin­sælasta leið­toga alþjóða­stofn­unar á sam­fé­lags­miðlum, með 142 þús­und fylgj­endur á Facebook og 200 þús­und á Twitter. Til sam­an­burðar er Herman van Rompuy, leið­togi ráð­herra­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins, aðeins með 35 þús­und fylgj­endur á Facebook.
Anders Fogh hefur gert það að algjöru for­gangs­máli að skapa jákvæða ímynd af NATO þar sem hann sjálfur hefur verið í for­grunni. Hágæða­ljós­myndir eru birtar á Facebook, Twitter og ljós­mynda­síð­unni Flickr af fundum hans með þjóð­ar­leið­togum um víða ver­öld. Þá sýna ráð­gjafar hans alheim­inum sömu­leiðis hann reglu­lega á morg­unskokki, hjól­reiðum eða jafn­vel í flúða­sigl­ingum eða fall­hlífa­stökki. Anders Fogh sendir sömu­leiðis reglu­lega frá sér víd­eó­blogg á YouTube þar sem hann fjallar gróf­lega um efn­is­at­riði hvers fundar og stefnu­mál.

Valin upplýsingaleynd


Hernaður hefur orðið undir í þess­ari nýju upp­lýs­inga­stefnu NATO. Þess í stað er áhersla lögð á sýni­leika borg­ara­legra verk­efna stofn­un­ar­innar, stjórn­mála­leg tengsl og áhrif. Myndir af átaka­svæðum heyra til algjörra und­an­tekn­inga og sýna þá aðeins borg­ara­lega starf­semi eða vina­lega ímynd af her­mönnum NATO. Lyk­il­orðið „varn­ar­banda­lag“ er haft að leið­ar­ljósi og forð­ast að „hern­að­ar­banda­lag“ liti umræð­una. Mjúkar áherslur eru meira að segja í fyr­ir­rúmi nú þegar NATO stendur frammi fyrir borg­ara­styrj­öld í Austur-Úkraínu.
Þrátt fyrir að NATO hafi sett auk­inn kraft í almanna­tengsl finn­ast litlar sem engar upp­lýs­ingar um mik­il­væg mál­efni á vef­svæði stofn­un­ar­innar, svo sem fjár­veit­ingar til ákveð­inna mála­flokka og starfs­manna­hald. Kostnaði við skrif­stofu og laun fram­kvæmda­stjór­ans er til að mynda haldið leyndum.

Borgaraleg verkefni fengu úthlutað 33,4 milljörðum króna samkvæmt fjárlögum NATO árið 2014. Þessi fjárlaga­liður nýtist meðal annars til að greiða launa­kostnað alþjóð­legs starfs­fólks höfuð­stöðva NATO í Brussel. Síðustu ár hefur um fimmtungi til fjórðungi þessa útgjalda­liðs verið varið í upplýsingamál. Hernaðar­hluti NATO fékk að sama skapi 215 milljarða króna árið 2014. Ísland greiðir 265 milljónir króna til NATO samkvæmt fjárlögum þessa árs, lang­minnst allra aðildar­ríkja þess.

Sú upplýsinga­stefna sem Anders Fogh hefur rekið hjá NATO hefur þar af leiðandi engan veginn endur­speglað verka­skiptingu og raun­verulegt hlutverk stofnunarinnar, sem er mun frekar hernaðarlegt heldur en borgaralegt.

Ósýnilega höllin


Meðal áhuga­verð­ustu ímynd­ar­verk­efna Anders Fogh er bygg­ing nýrra höf­uð­stöðva NATO í Brussel. Lögð er áhersla á jákvæða frá­sögn og fram­tíð­ar­mögu­leika NATO þrátt fyrir gríð­ar­legan umfram­kostnað og tafir við verk­efnið.
Eftir útboð verks­ins var ­samn­ingur gerður við verk­tak­ann BAM Alliance árið 2010 sem átti lægsta boð, 71 millj­arð króna. Fjár­hags­erf­ið­leikar BAM ­Alliance og mis­reikn­ingar hafa verið ræddir inn­an­húss í NATO og að raun­kostn­aður við bygg­ing­ar­fram­kvæmd­irnar geti orðið 30 millj­örðum hærri. Áætlaður heild­ar­kostn­aður NATO við bygg­ing­una og flutn­inga í nýtt hús­næði var 115 millj­arðar króna, en ótt­ast er að hann fari fram úr heim­ildum sem voru 155 millj­arðar króna.
BAM Alliance átti upp­haf­lega að skila bygg­ing­unni af sér í byrjun árs 2015, en nú bendir allt til þess að fram­kvæmdin drag­ist um allt að tvö ár.

Nýju höfuð­stöðvarnar eru ágætt dæmi um hvernig NATO hefur reynt að hylma yfir neikvæða umfjöllun um fjármál og önnur málefni stofnunarinnar.

Stuðningur í Danmörku


Anders Fogh nýtur ennþá mik­illa vin­sælda í Danmörku og hefur stuðn­ings­hópur hans kallað eftir því að hann snúi aftur sem hugs­an­legur arf­taki Lars Løkke Rasmus­sen, for­manns stjórn­mála­flokks­ins Venstre. Flokk­ur­inn heldur lands­þing fjórða til fimmta októ­ber og er almenn óánægja með Lars Løkke, sem 37 pró­sent Dana telja óhæfan til að verða for­sæt­is­ráð­herra.
Anders Fogh var leið­togi Venstre og for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur á einu stærsta gull­ald­ar­skeiði flokks­ins frá 2001 til 2009. Nú vill Venstre kom­ast aftur til valda og koma vinstri­st­jórn­inni frá. Á föstu­dag úti­lok­aði Anders Fogh í við­tali við TV2 að hann ætti aft­ur­kvæmt í dönsk stjórn­mál.

„Þann fyrsta október byrjar nýtt líf. Ég hef ekki tekið neina endanlega ákvörðun um hvað verður svo gert. En ég vil gjarnan slá tvennu föstu við. Ég hef hvorki áform um að snúa aftur í dönsk stjórnmál né um að verða eftirlauna­þegi,“ sagði hann.

Jens fyllir skóna


Jens Stol­ten­berg, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Noregs, verður arf­taki Anders Fogh sem fram­kvæmda­stjóri NATO. Hann hefur sömu­leiðis verið afar áhuga­samur um að nýta sér nýmiðla til að vekja athygli á störfum sínum. Hann fór óhefð­bundna leið fyrir þing­kosn­ing­arnar í Noregi í fyrra þegar hann keyrði leigu­bíl í einn dag til að kynn­ast kjós­endum, en var gagn­rýndur fyrir að nota aug­lýs­inga­stofu til að skipu­leggja við­burð­inn.

Jens er 55 ára og áhuga­maður um útivist, hlaup, fjall­göngur og skíða­mennsku og mun því falla vel í mynstrið í þeirri upplýsinga­stefnu sem Anders Fogh ýtti úr vör, með tvöfalt fleiri fylgjendur á samfélags­miðlum í farar­teskinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár