Eigandi gistihúss ósáttur við lokun lögreglu: „Talaðu bara við einhvern annan en mig“

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu greinir frá lokun gisti­heim­ilis á Bræðra­borgar­stíg á Facebook síðu sinni og deilir reynslu­sögu Íra sem segist ósáttur við viðbrögð AR Guesthouse.

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu greinir frá því á Facebook-síðunni að gistiheimilinu AR Guesthouse hafi verið lokað í þriðja skiptið. Að vísu nafn­greindi lögreglan ekki gistiheimilið en ljóst er að um er að ræða AR Guesthouse sem er til húsa við Bræðra­borgar­stíg 3.

„Í byrjun vikunnar lokaði Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu gistiheimili sem starfrækt var án rekstrar­leyfis. Þetta var þriðja skiptið sem þessu sama gistiheimili var lokað vegna þessa. Við minnum á í þeim tilvikum þar sem sala á gistirými á sér stað, er slíkur rekstur leyfis­skyldur. Ef leyfi vantar getur lögreglan neyðst til að grípa til lokunar án fyrirvara. Allar upplýsingar um hvernig má sækja um slík leyfi er að fá hjá sýslu­mönnum,“ skrifaði lögreglan á Facebook-síðu sinni.

Með færslunni deildi lögreglan sjáskoti af vefsíðu TripAdvisor þar sem Hugh nokkur frá Írlandi lýsir því hvernig honum hefði verið vísað á dyr vegna lokunar lögreglu. „Okkur, ásamt öllum öðrum, var sagt að taka saman föggur okkar og fara. Þetta var það seinasta sem við vildum heyra áður en við færum í allan dag í ferð. Í dag er ég enn að bíða eftir endur­greiðslu fyrir fjórar nætur og AR hefur ekki enn haft samband til að endur­greiða mér,“ skrifar Hugh frá Írlandi

 

„Ég hef ekkert um þetta að segja, það er arkitekt og lögfræðingur að vinna í þessu.“

Stundin hafði samband við AR gistihús og ræddi við eiganda gistihússins, Heiðar Reynisson. „Þetta er ekkert flókið, það er búið að úthluta þessu húsnæði gistiheimilis­leyfi og svo bara vilja þeir ekki uppfylla það. Ég hef ekkert um þetta að segja, það er arkitekt og lögfræðingur að vinna í þessu. Talaðu bara við einhvern annan en mig,“ segir Heiðar. Hann skellti á áður en blaða­maður gat spurt hann um hvort hann myndi endur­greiða Hugh.

Bræðra­borgar­stígur er í eigu HD verk ehf, sem er svo aftur í eigu eiginkonu Heiðars, Brynhildar Stef­ánsdóttur. Á heimasíðu AR Guesthouse er sérstak­lega tekið fram að gistiheimilið hafi öllu tilskyld leyfi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár