Innmúraðar þjóðir

Hug­myndir um landamæramúr eru ekki nýjar af nál­inni. Þó að umræðan í dag hverf­ist um landa­mæri Banda­ríkj­anna og Mexíkó hafa slík mann­virki verið reist um allan heim. Í dag rísa múrar víðar og hraðar en á tímum kalda stríðs­ins.

Tákn um veldi keisarans
Tákn um veldi keis­ar­ans Kína­m­úr­inn er 21 þús­und kíló­metra langur og umlukti mest allt Kína. Margir fræði­menn vilja meina að Kína­m­úr­inn hafi ekki síst markað sál­fræði­leg landa­mæri rík­is­ins og verið tákn­rænn fyrir hið mikla veldi keis­ar­ans. Allt sem stóð utan múrs­ins var útlent og illt, allt innan hans kín­verskt og gott. Mynd: Shutterstock

Kína­m­úr­inn er senni­lega það fyrsta sem flestum flýgur í hug þegar rætt er um stóra landamæram­úra. Þó að það sé að vísu rangt að hann sjá­ist með berum augum úr geimnum (til þess er hann of mjór) er um að ræða eitt ótrú­leg­asta mann­virki jarðar. Fram­kvæmdir hófust á sjö­undu öld fyrir Krist og á end­anum varð múr­inn 21 þús­und kíló­metra langur og umlukti mest allt Kína. Það er sjö sinnum lengri múr en Trump hefur lagt til að byggja.

Upp­haf­lega var um að ræða marga minni múra sem smám saman voru sam­ein­aðir til að verj­ast inn­rásum Mongóla og ann­arra útlend­inga sem Kín­verjar ótt­uð­ust. Hug­myndin var að her­sveitir á hest­baki gætu ekki nýtt styrk sinn á opnum sléttum heldur neydd­ust til að ráð­ast með öllu sínu liði á ein­staka hluta múrs­ins til að reyna að kom­ast í gegn eða yfir. Landamæra­verðir voru til­búnir á múr­num með bál­kesti sem þeir kveiktu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár