Funduðu strax með forstjóra Rio Tinto

Fjórum virkum dögum eftir að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra, réði framkvæmda­stjóra hjá Rio Tinto til átta ára sem aðstoðar­mann sinn funduðu þau með forstjóra Rio Tinto á Íslandi.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra, fundaði með Rannveigu Rist, forstjóra Rio Tinto á Íslandi, á mánudaginn. Fjórum virkum dögum áður hafði Þórdís ráðið Ólaf Teit Guðnason, framkvæmda­stjóra hjá Rio Tinto til átta ára, sem aðstoðar­mann sinn. 

„Það er eitthvað svolítið gott við að búa í landi þar sem mynd af fundi iðnaðar­ráðherra og forstjóra einnar stærstu verksmiðju landsins lítur svona út,“ skrifar Ólafur Teitur á Facebook þar sem hann deilir mynd af Þórdísi, núverandi yfirmanni sínum í iðnaðar­ráðuneytinu, og Rannveigu, fyrr­verandi yfirmanni sínum hjá Rio Tinto. 

Tilkynnt var um ráðningu Ólafs Teits á miðvikudaginn í síðustu viku, en hann hefur starfað sem framkvæmda­stjóri samskipta­sviðs Rio Tinto frá árinu 2008. Sem aðstoðar­maður mun Ólafur vinna að stefnu­mótun á málefna­sviði ráðuneytisisins í samvinnu við ráðuneytis­stjóra og undir yfir­stjórn Þórdísar Kolbrúnar.

Á meðal þeirra mála sem Þórdís Kolbrún fer með samkvæmt forseta­úrskurði eru ívilnanir vegna nýfjárfestinga, gerð fjár­festingar­samninga við fyrirtæki, fjár­festingar erlendra aðila í atvinnu­rekstri, orkumál og auðlinda­nýting. Þá fer hún með önnur mál er lúta að iðnaði, svo sem verksmiðju­iðnaði og stóriðju. 

Rio Tinto Alcan á Íslandi hf. rekur álverið í Straumsvík og er hluti af Rio Tinto Alcan, einum stærsta álframleiðanda í heimi. Verksmiðju­heiti álversins er ISAL og notar það  tæplega 3.000 gígawattstundir af raforku á ári, eða um 18% af þeirri raforku sem notuð er á Íslandi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár