Tilvalið að dreifa hlutum í Íslandsbanka til almennings í næsta skrefi

Sigríður Á. Andersen, fyrr­verandi ráðherra og þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, segir flokk sinn lengi hafa talað fyrir því að dreifa hlutum úr ríkis­bönkum til almennings. VG og Framsókn hafi hins vegar skotið þessa hugmynd í kaf.

Sigríður Á. Andersen.
Sigríður Á. Andersen. Mynd: Bára Huld Beck

Sigríður Á. Andersen, fyrr­verandi ráðherra og þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, segir tilvalið að næsta skref í sölu ríkisins í Íslands­banka verði það að dreifa hlutum til almennings – heimil­anna í landinu. Hún segir það „skandal“ að Vinstri græn og Framsókn hafi lagst gegn þessari hugmynd Sjálfstæðis­manna.

Sigríður var gestur í Silfrinu á RÚV í morgun. Þar var síðasta útboðið í Íslands­banka til umræðu.

Guðmundur Gunnarsson, frétta­stjóri Markaðarins og fyrr­verandi bæjar­stjóri á Ísafirði, sagði risastóra málið að Banka­sýslan sitji enn á 400 milljörðum króna og nú væri búið að „setja stopp“ á frekari sölu á hlut ríkisins. „Innviða­uppbygging víða um land er í hættu. Það er það sem að ég hef áhyggjur af, sem lands­byggðar­maður.“ Banka­salan hafi verið tækifæri til að fá fjármagn til að greiða upp þá „innviða­skuld“ sem skapast hefði í landinu. En af því verður ekki út af því „klúðri“ sem síðasta útboð var.

Sigríður sagðist taka undir þetta með Guðmundi en sagði annan „skandal“ einnig hafa komið upp. „Fjármála­ráðherra lýsti því hvernig VG og Framsóknar­flokkurinn lögðust gegn því, skutu þá hugmynd hans í kaf, að framkvæma þá hugmynd sem Sjálfstæðis­menn hafa haft í áratugi, meðal annars ég, um að deila – dreifa – þessum hlutum í bönkunum til almennings í landinu. Þetta hefur VG og Framsóknar­flokkurinn ekki viljað heyra minnst á.“

Hún sagði hins vegar tilvalið að taka það skref núna. „Að næsta ferli í að losa ríkið úr þessu eignar­haldi eigi að vera með þessum hætti. Að taka ákveðinn hluta af bankanum og dreifa þessu á heimilin í landinu og renna þannig styrkum stoðum undir öll heimili í landinu. Í kjölfarið svo að selja loka­hlutinn.“

Þetta er að sögn Sigríðar leið sem Sjálfstæðis­menn hafa viljað fara en hefur ekki hlotið hljóm­grunn hjá öðrum ríkis­stjórnar­flokkum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár