Skærur ganga á milli Qatar Airways og bandarískra flugfélaga

Akbar al-Baker forstjóri Qatar Airways neitaði í dag nýlegum ásökunum þriggja bandarískra flug­félaga, um að flug­félagið í Katar njóti ríkis­styrkja. Auk þess að neita ásökunum American Airlines, United og Delta, sakaði al-Baker síðastnefnda félagið um að menga háloftin með því að fljúga gömlum „drasl“ flugvélum. Frétta­vefurinn NewsAsia greinir frá málinu.

Með ummælunum þykir víst að forstjóri Qatar Airways hafi aukið enn á spennuna sem ríkir milli bandarískra flug­félaga og flug­félaga við Persaflóa.

Í samtali við fjölmiðla í Doha sagði Akbar al-Baker að greiðslur stjórn­valda í Katar til flug­félagsins hafi einvörðungu verið í formi hlutafjár samkvæmt laga­bókstafnum. Við sama tilefni sakaði Al-Baker forstjóra Delta um að þekkja ekki muninn á ríkis­styrk og inngreiddu hlutafé. Þá bæti hann við að flugfloti Qatar Airways væri mun umhverfis­vænni en sá sem Delta flug­félagið notist við.

Fyrr í mánuðinum sökuðu forsvars­menn þriggja áður­nefndra bandarískra flug­félaga, Qatar Airways sem og fleiri flugfélög í Sameinuðu Arabísku fursta­dæmunum um að hafa þegið 42 milljarða Bandaríkja­dala ríkis­styrki til að verjast samkeppni frá öðrum flug­félögum.

Al-Baker, forstjóri flug­félagsins í Katar, hefur sakað Delta um að fljúga 35 ára gömlum „drasl“ flugvélum. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Delta eru 772 flugvélar félagsins að jafnaði 16,9 ára gamlar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár