Ætluðu sér að drepa lögreglumenn í Belgíu

Hópur íslamskra öfgamanna ætlaði sér að gera árásir á lögreglu­stöðvar og á lögreglu­menn í Belgíu. Tveir menn voru skotnir til bana í stórri lögreglu­aðgerð í Verviers í Belgíu í gær, þar sem grunur lék á að mennirnir ætluðu að láta til skarar skríða. Þeir hófu skothríð á lögreglu­menn sem svöruðu með skotum til baka, og féllu mennirnir tveir sem grunaðir voru um að ætla að drepa lögreglu­menn.

Þrettán hafa verið hand­teknir í Belgíu á undan­förnum sólar­hring, samkvæmt fréttum breska ríkis­útvarpsins BBC, og tveir í Frakk­landi.

Samkvæmt upplýsingum frá talsmanni lögreglunnar, Eric Van Der Sypt, sem BBC vísar til, hafði lögreglan skýrar sannanir fyrir því að mennirnir ætluðu sér að ráðast á lögregluna með það að markmiði að drepa sem flesta.

Hámarksöryggsgæslan er nú við ýmsar opinberar byggingar í Belgíu, en ekki hefur verið staðfest ennþá að allir þeir sem grunaðir eru um aðild að undir­búningi árásanna hafi verið hand­teknir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár