130 milljarða búvörusamningar lögfestir með aðeins 19 atkvæðum

Umdeilt frumvarp sem gefur fyrirheit um 13 milljarða ríkis­styrki til bænda næstu 10 árin var samþykkt á Alþingi í dag. 21 þingmaður var fjar­verandi og 16 þingmenn sátu hjá.

Frumvarp vegna búvöru­samninga ríkis­stjórnarinnar við bændur var samþykkt á Alþingi með aðeins 19 atkvæðum í dag. 

Í frum­varpinu eru bændum gefin fyrirheit um ríkis­stuðning upp á um það bil 13 milljarða á ári næstu 10 árin. Alls eru þetta samtals meira en 130 milljarðar króna en ofan á þetta bætist óbeinn stuðningur í formi toll­verndar upp á um það bil 9 milljarða á ári.

Gert er ráð fyrir að endur­skoðun á samningunum fari fram ekki seinna en árið 2019 en í lögunum felst skuld­binding um veglega ríkis­styrki allt til ársins 2026.

Þegar greidd voru atkvæði um frum­varpið voru 14 þingmenn fjar­verandi og sjö þingmenn með skráða fjarvist. 16 þingmenn sátu hjá, þar af 12 þingmenn stjórnar­andstöðunnar.

Sjö þingmenn greiddu atkvæði gegn frum­varpinu, allur þing­flokkur Bjartrar framtíðar ásamt Sigríði Á. Andersen, þingkonu Sjálfstæðis­flokksins. 

Eftir­farandi þingmenn greiddu atkvæði með frum­varpinu en allir tilheyra Framsóknar­flokknum og Sjálfstæðis­flokknum: 

Ásmundur Einar Daðason, Ásmundur Friðriksson, Bjarni Benediktsson, Einar K. Guðfinnsson, Frosti Sigurjónsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Haraldur Benediktsson, Haraldur Einarsson, Illugi Gunnarsson, Jóhanna María Sigmunds­dóttir, Karl Garðarsson, Líneik Anna Sævars­dóttir, Páll Jóhann Pálsson, Sigrún Magnúsdóttir, Vilhjálmur Árnason, Vilhjálmur Bjarnason, Willum Þór Þórsson, Þorsteinn Sæmundsson og Þórunn Egils­dóttir.

Eftir­farandi þingmenn sátu hjá: Árni Páll Árnason, Ásta Guðrún Helga­dóttir, Birgir Ármannsson, Bjarkey Olsen Gunnars­dóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Hanna Birna Kristjáns­dóttir, Helgi Hrafn Gunnarsson, Katrín Jakobs­dóttir, Katrín Júlíusdóttir, Kristján L. Möller, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Ragn­heiður Ríkharðs­dóttir, Steinunn Þóra Árna­dóttir, Svandís Svavars­dóttir, Valgerður Bjarna­dóttir og Össur Skarp­héðinsson.

Eftir­farandi þingmenn voru fjar­verandi: Birgitta Jóns­dóttir, Brynjar Níelsson, Elín Hirst, Helgi Hjörvar, Höskuldur Þórhallsson, Jón Gunnarsson, Oddný G. Harðar­dóttir, Ólína Kjerúlf Þorvarðar­dóttir, Ragn­heiður E. Árna­dóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Unnur Brá Konráðs­dóttir, Valgerður Gunnars­dóttir, Vigdís Hauks­dóttir og Ögmundur Jónasson. Þá voru Elsa Lára Arnar­dóttir, Eygló Harðar­dóttir, Kristján Þór Júlíusson, Sigríður Ingibjörg Inga­dóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Silja Dögg Gunnars­dóttir og Stein­grímur J. Sigfússon með skráða fjarvist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Búvörusamningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár