Meiri verðhjöðnun á evrusvæðinu en minna atvinnuleysi

Ný verðbólguspá frá Eurostat, hagstofu Evrópu­sambandsins, sýnir að verð­hjöðnun er á evru­svæðinu. Verðbólga mælist nú -0,6 prósent fyrir janúar, en spár hagfræðinga höfðu flestar gert ráð fyrir -0,5 prósentum. Fyrr í dag komu fram tölur um verðbólgu í desember, en hún mældist -0,2 prósent þá. Mestu munar um lægra olíuverð, en verð á mat, áfengi og tóbaki lækkaði einnig lítillega.

Nýju tölurnar þykja styrkja áætlun Seðla­banka Evrópu um örvandi aðgerðir, en bankinn tilkynnti í síðustu viku um umfangs­miklar aðgerðir sem eiga að hefjast í mars. Bankinn ætlar að kaupa ríkis­skuldabréf fyrir 60 milljarða evra á mánuði út september á næsta ári, eða samtals meira en trilljón evra. Þetta er gert til þess að stöðva verðhjöðunarþróun og koma verð­bólgunni aftur nær markmiðum Seðla­banka Evrópu, sem eru rétt undir tveimur prósentum.

Seðla­bankinn gerir ráð fyrir að verð­hjöðnun verði áfram meirihluta ársins en Peter Praet, yfir­hagfræðingur bankans, sagði í gær að viðsnúningur verði væntanlega á þriðja ársfjórðungi.

Jákvæðar atvinnuleysistölur


Atvinnu­leysi á evru­svæð­inu minnk­aði hins vegar óvænt milli mán­aða og er nú lægra en það hefur verið í tvö ár, eða 11,4 pró­sent. Búist hafði verið við því að engin breyt­ing yrði á atvinnu­leysis­tölum. Atvinnu­leysi er sem fyrr gríð­ar­lega mis­jafnt í ríkj­unum sem mynda evru­svæðið, mest er atvinnu­leysið í Grikk­landi og á Spáni, en minnst í Þýska­landi.

Sömu sögu er að segja af atvinnu­leysi meðal allra 28 Evrópu­sambands­ríkjanna, en atvinnu­leysið fór niður fyrir 10 prósent í fyrsta skipti frá því í október 2011, en það mældist 9,9 prósent í desember. Rúmlega 24 milljónir manna eru enn án atvinnu innan Evrópu­sambandsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár