Sjómannafélagið greiddi Halli 1,2 milljónir króna fyrir bækling

Hallur Hallsson fékk 1,2 millj­ónir króna frá Sjó­manna­fé­lagi Íslands fyrir ritun upp­lýs­inga­bæk­lings. Þetta bæt­ist við þær þrettán millj­ónir króna sem hann fékk fyrir að rita sögu félags­ins. Hvorki hann né for­maður félags­ins svara því hvort hann hafi fengið greitt fyrir fleiri verk­efni.

Bók og bæklingar
Bók og bæk­lingar Hallur skrif­aði bók um sögu Sjó­manna­fé­lags Íslands sem fæst gef­ins á skrif­stofu Sjó­manna­fé­lags Íslands. Þá skrif­aði hann einnig bæk­linga félags­ins.

Sjómanna­fé­lag Íslands fékk Hall Hallsson, rit­höf­und og fyrr­ver­andi fjöl­miðla­mann, til þess að sjá um árlegan upp­lýs­inga­bæk­ling félags­ins. Hann sá alfarið um verk­efnið þar til fyrir tveimur árum þegar útgáfa bæk­lings­ins var stöðvuð vegna ann­ars kostn­aðar félags­ins í tengslum við verk­föll sjó­manna. Þetta kemur fram í svörum Halls við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Hallur seg­ist hafa fengið 1,2 millj­ónir króna fyrir skrif bæk­lings­ins. Hann svarar því hins vegar ekki hvort hann hafi fengið þessa upp­hæð greidda fyrir skrif hvers bæk­lings fyrir sig eða skrif þeirra allra. Stundin greindi frá því á dög­unum að Hallur hefði fengið alls þrettán millj­ónir króna á árunum 2013–2015 fyrir að skrifa sögu Sjó­manna­fé­lags Íslands. Í árs­reikn­ingi Sjó­manna­fé­lags Íslands fyrir árið 2015 kemur fram að félagið hafi greitt rúm­lega 22 millj­ónir króna fyrir „rit­störf“ á árunum 2014 og 2015.

Hallur gefur ekki upp hvort hann hafi þegið greiðslur frá félag­inu fyrir eitt­hvað annað en umrædd …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár