Hinum allra fátækustu í heiminum fer fækkandi

Fjöldi þeirra allra fátækustu í heiminum fer lækkandi og verður í ár í fyrsta sinn undir tíu prósentum af mann­kyninu, samkvæmt nýrri spá Alþjóða­bankans. Árið 2012 var hlutfall þeirra sem lifa fyrir minna en 1,25 dollara á dag um 12,8 prósent af mann­kyninu, eða um 902 milljónir manna. Því er spáð að hlut­fallið lækki í 9,6 prósent í ár og telji alls um 702 milljónir manna.

„Þetta er besta fréttin í heiminum í dag,“ sagði Jim Yong Kim, forseti Alþjóða­bankans, þegar spáin var birt í gær. „Spárnar sýna okkur að við erum fyrsta kynslóðin í sögu mannsins sem getur eytt mestu fátækt.“ Forsetinn varaði þó við hættu­merkjum, meðal annars minnkandi hagvexti í heiminum, stríðs­átökum, viðkvæmum fjármála­mörkuðum og áhrifum loftlags­breytinga.

Fækkun hinna fátækustu er í spá Alþjóða­bankans helst rakin til mikils hagvaxtar í nývaxtar­löndum, einkum Indlandi, auk fjár­festinga í menntun, heilbrigðis­kerfum og almanna­tryggingum.

Alþjóða­bankinn ákvað árið 1990 að fátæktar­mörk (e. extreme poverty line) væru undir einum dollara á dag. Mörkin voru hækkuð árið 2008 í 1,25 dollara. Fjöldi þeirra sem lifa undir fátæktar­mörkum hefur fækkað um helming frá árinu 1990, samkvæmt gögnum Sameinuðu þjóðanna. Eitt markmiða Sameinuðu þjóðanna er að eyða mestu fátækt í heiminum fyrir árið 2030.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár