The Interview með 9,9 á IMDB og allir hvattir til að gefa henni 10

Kvik­myndin The Interview, sem Sony Pictures kvikmynda­fram­leiðandinn ákvað að fresta sýningu á vegna hótanna tölvu­hakkara, er sem stendur með 9,9 í einkunn á vefnum Internet Movie Data Base, eða IMDB. Alls hafa á þriðja tug þúsund manns gefið henni 10 í einkunn. Samkvæmt því er hún besta kvikmynd sögunnar, en myndin hefur, líkt og áður sagði, ekki enn verið sýnd.

Í nóvember var gerð stórfelld tölvuárás á kvikmynda­fram­leiðandann Sony Pictures og trúnaðar­gögnum, tölvupóst­samskiptum, eintökum af óútgefnum bíómyndum og ýmsu fleira stolið. Hluti þessarra gagna hefur síðan lekið út og ollið miklu fjaðra­foki.

Bandaríska alríkis­lögreglan FBI segist hafa fengið það staðfest að Norður-Kórea standi að baki tölvu­árásinni og að ástæðan sé umrædd kvikmynd, The Interview, sem gjallar um bandaríska blaðamenn sem eiga að myrða leiðtoga Norður-Kóreu fyrir bandarísku leyni­þjónustuna CIA.

Eftir að hótanir bárust um að hryðju­verk yrðu framin ef myndin yrði sýnd ákvað Sony Pictures að hætta við sýningu hennar, en til stóð að frumsýna hana á jóladag.

Ákvörðun Sony Pictures hefur verið harðlega gagnrýnt, meðal annars af Barack Obama, forseta Banda­ríkjanna, sem segir málið sé allt hið alvarlegasta.

Í lok síðustu viku setti notandi IMBD gagnrýni á myndina inn á síðuna, hraunaði yfir Sony fyrir ákvörðun sína, gaf myndinni fullt hús og hvatti alla aðra til að gera slíkt hið sama. „Sem bandarískir borgarar þá höfum við algjöran rétt til að sjá þessa mynd, Sony þarf að láta sér vaxa hreðjar og sýna almenningi myndina. FÁIÐ ALLA SEM ÞIÐ GETIÐ TIL AÐ GEFA ÞESSARI MYND 10 Á ÞESSARI SÍÐU!!! OG HEIMTIÐ AÐ BIÐ FÁUM AÐ SJÁ HANA!!!“, segir notandinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár