Sóttu hlutafé í vasa Snoop Dogg og Jared Leto

Aðstand­endur samfélags­miðilsins Reddit hafa sótt sér 50 milljónir Bandaríkja­dala í nýtt hlutafé að undan­förnu, eða sem nemur um sex milljörðum króna. Samkvæmt fréttum frétta­miðilsins Quartz í gær er heildar­virði hlutafjár metið á 500 milljónir Bandaríkjdala í þessum viðskiptum, eða sem nemur um 60 milljörðum króna. Á meðal þeirra sem keyptu hlut í Reddit voru rapparinn Snoop Dogg og leikarinn og tónlistar­maðurinn Jared Leto. Fjár­festarnir Marc Andreessen og Peter Thiel keyptu einnig hlut.

Andreessen er þekktur nýsköpunar­fjárfestir og kom meðal annars að stofnun Mosaic og Netscape, en hann rekur nú fjár­festinga­sjóð á sviði frumkvöðla­starfsemi.

Thiel, sem er fæddur í Þýska­landi, hefur einnig víðtæka reynslu af nýsköpunar­fjár­festingum. Hann var á meðal stofnenda Pay Pal ásamt Elon Musk, eiganda Tesla Motors og SpaceX.

Upphaf­lega hugmyndin að baki Reddit var að gefa lesendum möguleika á því að fylgjast með því sem væri nýjast og áhuga­verðast á vefnum. Miðillinn er gríðar­lega vinsæll í Banda­ríkjunum og þykir hafa marg­víslega vaxtar- og tekju­möguleika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár