Converse stefnir eiginlega öllum vegna "Chuck" eftirlíkinga

Skóframleiðandinn Converse, sem er í eigu fatarisans Nike, hefur stefnt 31 smásölu­keðju, meðal annars Walmart, Kmart, Skechers og H&M, fyrir að framleiða og selja eftir­líkingar af hinum goðsagna­kenndu "Chuck" striga­skóm. Huffington Post segir frá málinu.

Í frétta­tilkynningu sem Converse sendi fjöl­miðlum vegna málsins er haft eftir Jim Calhoun forstjóra fyrir­tækisins að "Chuck Taylor" striga­skórnir hafi notið fádæma vinsælda til fjölda ára, og á síðustu hundrað árum hafi Converse selt um milljarð skópara af þessum vinsælu striga­skóm víða um heim. "Við fögnum heiðarlegri samkeppni, en teljum að önnur fyrirtæki hafi engan rétt til þess að herma eftir sögufrægu útliti "Chuck" striga­skósins."

Converse All-Star striga­skórnir komu fyrst á markað árið 1917. Í upphafi þriðja áratugarins var nafni þeirra breytt í Chuck Taylor All-Stars eftir samnefndum körfubolta­manni, sem varð mikill talsmaður þeirra, og ruddi þar með brautina fyrir skóframleiðendur að merkja vörur sínar frægum einstaklingum við markaðs­setningu þeirra.

Í upphafi var saumað stjörnu­laga merki á skóna til að vernda ökkla körfubolta­leikmanna, en striga­skórnir með gúmmítána þróuðust úr því að vera fyrst og síðast íþrótta­skór yfir í það að verða gríðar­lega vinsælir á meðal grugg­rokkara og pönkara á níunda áratugnum.

Í stefnu Converse, sem var þingfest fyrir dómstólum í New York í síðustu viku, er því haldið fram að fram­leiðsla eftir­líkinga á vörum fyrir­tækisins hafi snaraukist síðan árið 2008. Fyrir­tækið, sem sendi einnig kvörtun til framkvæmda­stjórnar Alþjóð­lega verslunar­ráðsins vegna málsins, krefst skaðabóta úr hendi hinna stefndu sem verði ákvarðaðar fyrir dómstólum. Miðað við útbreiðslu eftir­líkinga af Chuck striga­skónum, má reikna með að skaða­bæturnar muni nema himinháaum fjárhæðum, fallist dómstólar á mála­tilbúnað Converse.

Walmart, Kmart og H&M urðu ekki við beiðni Huffington Post um viðbrögð við stefnu Converse. Þá sagði talskona Skechers skóframleiðandans að fyrir­tækinu hafi ekki enn borist stefna Converse, og því muni fyrir­tækið ekki tjá sig að svo stöddu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár