Fossar dæmdir til að una sekt FME út af bónusum fyrirtækisins sem „klæddir“ voru í búning arðs

Fjármála­fyrirtækið Fossar Markaðir greiddi út of háa kaupauka til starfs­manna sinna á árunum 2016 og 2017 og kallaði þessar greiðslur ranglega arð. Þetta er mat FME og nú Héraðs­dóms Reykja­víkur sem hefur dæmt íslenska ríkinu í hag eftir að Fossar reyndu að fá sektar­greiðslu vegna málsins hnekkt. Forstjóri Fossa segir fyrir­tækið vera að íhuga næstu skref.

Tekið undir mat FME
Tekið undir mat FME Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur tekið undir mat FME um að arð­greiðslur Fossa Markaða hafi verið kaupauka­greiðslur klæddar í bún­ings arðs. Unnur Gunn­ars­dóttir er for­stjóri FME.

Fjármála­fyrirtækið Fossar markaðir þarf að una sektar­greiðslu frá Fjármála­eftirlitinu (FME) upp á 10,5 milljónir króna fyrir að hafa greitt út of háar bónus­greiðslur til starfs­manna og kallað þær arð á árunum 2016 og 2017.

Umræddir starfs­menn voru svokallaðir B-hluthafar í félaginu. Um var að ræða greiðslur sem námu allt frá 52 prósentum af heildar­launum starfs­manna og allt upp í 226 prósent en leyfilegt hlutfall bónus­greiðslna er 25 prósent. Þetta kemur fram í nýjum dómi frá Héraðs­dómi Reykja­víkur en Fossar markaðir vildu ekki una sektinni og höfðaði því mál gegn Seðla­banka Íslands og íslenska ríkinu.  

„Engu skipti í þessu sam­bandi þótt téður kaup­auki hafi verið klæddur í bún­ing arð­greiðslna af hlutum í B-flokki.“

Kaupauki klæddur í búning arðgreiðsla

Eins og FME sagði í upphaflegri niður­stöðu sinni um sektina þá taldi stofnunin að arðgreiðslurnar hafi verið endur­gjald í þágu starfs­mannanna fyrir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár