Tveir enskir bæir fá hröðustu internet tengingu í Evrópu

Ensku bæirnir Gosforth og Huntington fá bráðlega hröðustu internet tengingu í Evrópu, eftir að fjarskipta­fyrirtækið BT tilkynnti að ný tenging, sem býður upp á 500 megabæta hraða á sekúndu, verði prófuð á tveimur stöðum í sumar. Frétta­miðillinn Business Insider greinir frá málinu.

Til að setja nettenginguna í samhengi er meðal internet­hraði á Bretlands­eyjum um 29 megabæt á sekúndu. Borgin Bolton er með hraðasta netið á Bretlands­eyjum, eða tæplega 45 megabæt á sekúndu. Meðal nethraði á heimsvísu er um 22 megabæt á sekúndur en Singapúr er með hraðasta internetið að jafnaði í heiminum, eða 104 megabæt á sekúndu.

Í tilkynningu frá BT kemur fram að um 4.000 heimili og fyrirtæki í Huntington og Gosforth verði fyrst til að prófa nýju uppfærsluna, sem fram til þessa hefur bara verið prófuð hjá fjarskipta­fyrirtækinu.

Ef allt gengur að óskum verður þjónustan í boði fyrir restina af Bretlands­eyjum innan áratugar. Þjónustan hefur hlotið nafnið „G.fast.“

Til að átta sig á niðurhals-hraða, er hægt að glöggva sig á töflu sem tekin hefur verið saman um hversu langan tíma það tekur að sækja mismun­andi skráar­gerðir miðað við allt að 100 megabæta hraða á sekúndu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár