Hitastigið á Gardermoen lækkað – Framkvæmdastjóri Sþ vill viðskiptahindranir á Rússa úr vegi

Hita­stigið á alþjóða­flug­vellinum í Ósló hefur verið lækkað til að spara rafmagn. Noregur er annar stærsti raforku­fram­leiðandi heims, á eftir Íslandi, miðað við höfðatölu. Matvæla­skortur gæti verið í uppsiglingu, segir framkvæmda­stjóri Sameinuðu þjóðanna.

Noregur er annar mesti framleiðandi raforku í heiminum á hvern íbúa á eftir Íslandi.
Noregur er annar mesti fram­leið­andi raf­orku í heim­inum á hvern íbúa á eftir Íslandi.

Það sem af er ári hefur rafmagns­reikningurinn fyrir Gardermoen-flugvöll í Ósló numið 136 milljónum norskra króna, rúmlega 1,8 milljarði íslenskra króna. Verð­hækkanir á rafmagni í Noregi hafa gert að að verkum að yfirvöld hafa ákveðið að draga úr orku­notkun á flug­vellinum og einn liður í því er að lækka hita­stigið í flugvallar­byggingunum. Þetta er haft eftir Stine Ramstad Westby, framkvæmda­stjóra Gardermoen, norska blaðinu Romerikes Blad.

Það verður þó ekki undir frost­marki inni í byggingunum heldur verður hita­stigið lækkað um 1-2 gráður og fer því niður í um 20 gráður á þeim svæðum sem flug­farþegar fara um. Á öðrum svæðum verður hita­stigið lækkað enn meira.

Með aðgerðunum vonast flugvallar­yfirvöld til að spara 1,5 gígavatts­stundir á ári sem jafn­gildir notkun um 75 einbýlis­húsa í landinu.

„Við sjáum að rafmagns­reikningurinn hefur hækkað upp úr öllu valdi, þrátt fyrir að við séum með góða raforku­samninga og að byggingar okkar eru hannaðar með orku­sparnaði í huga,“ segir Westby. „Þess vegna erum við að horfa til allra þátta sem geta lækkað kostnað okkar.“

Það hljómar ef til vill undarlega að það land í heiminum sem fram­leiðir næst mest af rafmagni á hvern íbúa standi frammi fyrir orkukrísu. Skýring­arnar eru nokkrar. Í fyrsta lagi hefur söfnun í uppistöðulón vatnsafls­virkjana á ákveðnum svæðum í landinu ekki gengið sem skyldi eftir þurrt og heitt sumar. Í öðru lagi er innrás Rússa í Úkraínu að hafa áhrif. Þau eru m.a. tilkomin vegna þess að Rússar hafa brugðist við viðskipta­þvingunum Evrópu­sambandsins, sem Noregur styður, með því að draga verulega úr afhendingu gass til Evrópu. Hluti af raforku­kerfi Noregs er tengdur megin­landinu. Það þýðir að fram­leiðendur og veitu­fyrirtæki geta selt rafmagnið til hæstbjóðanda. Eftir­spurn eftir norsku rafmagni er því mikil og verðið hefur því hækkað.

Vill kjarnorkuver í Noregi

Norski milljarðamæringurinn Trond Mohn hefur lagt til að byggð verði kjarnorkuver í Noregi til að auka sjálfbærni landsins er kemur að orkuöflun. Hann hefur þegar stofnað fyrirtæki, Norsk Kjernakraft, í þeim tilgangi. Áform hans miða við að hægt verði að opna kjarnorkuver í Noregi að 10 til 15 árum liðnum.

Orkumála­ráðherrann Terje Aasland hefur slegið þá hugmynd út af borðinu. Hann segir kjarnorkuver ekki vera raun­verulega lausn á vandanum fyrir Norðmenn. Fjölmörg vandamál fylgi kjarnorku­verum. Þau séu dýr og geymsla geisla­virkra efna sem falla til við fram­leiðsluna sé mikill vandi hjá öllum þeim ríkjum sem eru með kjarnorkuver.

António Guterres, framkvæmda­stjóri Sameinuðu þjóðanna, vill að öll ríki heims fjarlægi viðskipta­hindranir sem standa í vegi fyrir því að rússneskur áburður sé fluttur frá landinu og á markað. „Ef áburðar­markaðurinn nær ekki jafnvægi þá gæti heims­byggðin orðið uppi­skroppa með mat á næsta ári,“ skrifaði hann í Twitter-færslu í morgun, föstudag. Það sé því „nauðsynlegt“ að ríki afnemi allar hindranir hvað varðar innflutning á rússneskum áburði. „Við verðum að koma áburðinum til bænda á sann­gjörnu verði og út á akrana sem allra fyrst.“

Í frétt NRK í morgun kom fram að útgjöld norskrar vísitölu­fjölskyldu, tveggja full­orðinna og tveggja barna, verði 20 prósent hærri í ár en í fyrra. Norsk heimili eru þegar farin að draga úr notkun rafmagns og neyslu­vara. Stýri­vextir voru hækkaðir í Noregi í gær þar sem verðbólga hefur aukist hratt á síðustu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár