Nýting lítilla flugvalla svar við samkeppnishamlandi umhverfi

Lággjalda­flugfélög eiga erfitt með að fá pláss á stórum flug­völlum vegna núverandi úthlutunar­kerfis á afgreiðslu­tímum, segir hagfræðingur í nýjasta tölublaði Vísbendingar. Kerfið hefur neytt flug­félögin til að róa á önnur mið og sækja á smærri flugvelli.

Núverandi úthlutunar­kerfi á afgreiðslu­tímum flugvalla í Evrópu er óskilvirkt og hamlar samkeppni á milli flug­félaga. Lággjalda­flugfélög hafa brugðist við þessari óskilvirkni með því að fljúga til smærri flugvalla, en það hefur gjör­breytt markaðnum fyrir flug. Þetta skrifar Þórunn Helga­dóttir, hagfræðingur hjá Compass Lexecon í Madríd, í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Kerfið hyglir eldri flugfélögum

Í grein sinni fer Þórunn yfir stýringu evrópska flug­netsins og hagræn áhrif þess, auk áhrifanna sem innkoma lággjalda­flugfélaga hefur haft á markaðinn á síðustu árum. Samkvæmt henni hefur kerfið sem er notað til að úthluta afgreiðslu­tímum á flug­völlum í álfunni verið gagnrýnt fyrir að hamla samkeppni og nýtast einkum eldri flug­félögum.

Í kerfinu búa eldri flugfélög, sem fengu upphaf­lega úthlutað afgreiðslu­tímum á mikil­vægum tengi­höfnum líkt og Charles de Gaulle í París eða Heathrow í London, yfir miklum verðmætum þar sem þau hafa forgangs­rétt að sínum plássum. Þetta gerir lággjalda­flug­félögunum erfitt fyrir að ná afgreiðslu­tíma á stóru flug­völlunum.

„Draugaflug“ eru samkeppnishamlandi

Réttur flug­félaganna til að halda sínum afgreiðslu­tíma hefur hins vegar verið í hættu vegna lítillar eftir­spurnar eftir flug­ferðum í kjölfar heims­faraldursins, en samkvæmt úthlutunar­kerfinu þurfa þau að nýta ákveðið hlutfall af sínum lendingar- og brottfarar­tímum. Vegna þess hafa félögin tekið upp á því að fljúga tómum vélum á milli flugvalla í svokölluðum „drauga­flugum“.

„Slík flug fela augljós­lega í sér mikla sóun og stangast á við umhverfis­markmið Evrópu­sambandsins að draga úr losun,“ segir Þórunn í greininni sinni. Einnig bendir hún á að athæfið sé samkeppnis­hamlandi og þar af leiðandi skaðlegt neytendum, þar sem það kemur í veg fyrir að önnur flugfélög geti nýtt sér afgreiðslu­tímana.

Betri sætanýting með litlum flugfélögum

Svar lággjalda­flug­félaganna við þessu samkeppnis­hamlandi úthlutunar­kerfi er að lenda á svokölluðum auka­flugvöllum, líkt og Gatwick hjá London og Orly hjá París, þar sem lendinga­gjöld eru almennt lægri og ólíklegra er að tafir verði á flugi vegna minni umferðar.

Þórunn segir innkomu lággjalda­flugfélaga hafa gjör­breytt markaðnum fyrir flug með því að bjóða upp á tíðar ferðir á lágu verði sem byggir oftast á beinu flugi milli áfanga­staða. Sæta­nýting er einnig betri hjá lággjalda­flugfélögum, sem leiðir til þess að útblástur á hvern seldan sætis­kílómetra hefur dregist saman.

Þó bætir Þórunn við að túlka þurfi þessar tölur varlega þar sem flug­umferð hafi aukist vegna tilkomu lággjalda­flugfélaga, en með meiri flug­umferð hefur losun á kolefnis­útblæstri sömuleiðis aukist.

Áhugavert útspil hjá PLAY

Þórunn nefnir einnig áform PLAY um að hefja flug til New York í greininni sinni, þar sem flug­félagið hyggst fljúga til auka­flugvallar sem er í nokkurri fjarlægð frá borginni. Með því segir hún að félagið sé að feta í fótspor annarra lággjalda­flugfélaga sem hafa gefist upp á barátt­unni um afgreiðslu­tíma á stærstu tengi­höfnunum sem Icelandair hefur aðgang að.

„Það verður áhugavert að sjá hvernig farþegar bregðast við þessu útspili,“ segir Þórunn og bætir við að lendingar­gjöld eigi að vera um 80 prósentum lægri á auka­flug­vellinum heldur en á öðrum flug­völlum í New York. „Hvort það sé nóg til að vega upp á móti smærri markaði sem þeim býðst á auka­flugvelli þarf tíminn að leiða í ljós,“ segir hún einnig.

Hægt er að lesa grein Þórunnar í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár