Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag.


  1. Nú er það glæpur að fara yfir eða skemma gaddavírs­girðingu sem búið er að setja upp á landa­mærum Ungverja­lands og Serbíu. Tugir þúsunda flótta­manna munu að líkindum leita annarra leiða til að komast inn á svæði Evrópu­sambandsins.

  2. Flótta­menn hafa þegar hafið að fara í átt til Króatíu og Slóveníu eftir að Ungverja­land lokaði sínum landa­mærum. Króatía hefur tilkynnt að landamæri ríkisins verði opin.

  3. Nú er þess beðið hvort tilkynnt verður um stýri­vaxtahækkun í Banda­ríkjunum eða ekki. Það verður tilkynnt á morgun, en stýri­vextirnir hafa verið nálægt 0 í sex ár.

  4. Náinn banda­maður Vladimír Pútín segir að niður­sveiflan í rússnesku efnahags­lífi muni vara áfram næstu tvö árin.

  5. Hewlett-Packard mun fækka starfs­fólki um þrjátíu þúsund, að mestu leyti af þjónustu­borðum tölvu­fyrir­tækisins í mörgum löndum.

  6. Fjöldi sjávar­spendýra, fugla, skriðdýra og fiska hefur helmingast frá árinu 1970 vegna ofveiði, mengunar og loftslags­breytinga, samkvæmt nýrri skýrslu World Wildlife Fund.

  7. Norður-Kórea segist vera að þróa lang­drægari eldflaugar og að stærsta kjarnorkuver ríkisins sé í gangi.

  8. Flugvallar­starfsmenn í Chile gengu út úr vinnunni og halda 24 tíma verkfall vegna deilna um eftirlaun. Þetta hefur orðið til þess að um 300 flugum var aflýst og 50 þúsund farþegar urðu stranda­glópar.

  9. Mikils­metinn hagfræðingur, Kevin Lai hjá Daiwa Capital Markets, hefur varað við því að efnahagskrísa sé framundan í Kína.

  10. Porsche kynnti nýjan rafbíl á bíla­sýningunni í Frankfurt í gær, sem hefur vakið mikla athygli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár