Helga Vala nýr þingflokksformaður Samfylkingarinnar

Nýr formaður þing­flokks Samfylk­ing­ar­innar tekur við af Oddnýju Harðar­dóttur.

Helga Vala Helgadóttir hefur setið á þingi fyrir Samfylkinguna frá árinu 2017.
Helga Vala Helga­dóttir hefur setið á þingi fyrir Sam­fylk­ing­una frá árinu 2017. Mynd: Bára Huld Beck

Helga Vala Helga­dóttir hefur tekið við formennsku þing­flokks Samfylkingarinnar en tillaga formanns þess efnis var samþykkt á þing­flokksfundi í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum.

Tekur hún við af Oddnýju Harðar­dóttur en hún hefur verið þing­flokks­formaður flokksins síðan árið 2017.

Helga Vala hefur setið á þingi fyrir hönd Samfylkingarinnar frá árinu 2017. Hún var formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis á árunum 2017 til 2019 og formaður velferðar­nefndar 2019 til 2021. Þórunn Svein­bjarnar­dóttir var auk þess kjörin vara­formaður þing­flokks og Kristrún Frosta­dóttir ritari þing­flokks á fundinum.

„Þrátt fyrir sérstakt upphaf kjör­tímabils erum við í Samfylkingunni full tilhlökkunar að þing komi saman enda mörg brýn verkefni framundan auk þess sem við höfum undan­farnar vikur unnið að mikil­vægum málum sem við viljum setja á dagskrá,” sagði Helga Vala eftir fundinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár