ESB líklegt til að skattleggja gegn áhrifum verðbólgu

Líklegt er að Evrópu­sambandið muni styðja upptöku hvalreka­skatts á orku­fyrirtæki í álfunni til að fjármagna stuðnings­aðgerðir við tekjulág heimili og fyrirtæki vegna mikilla verð­hækkana. Ítalía hefur nú þegar samþykkt slíka skatt­lagningu.

Mario Draghi, forsætisráðherra Ítalíu, ásamt Ursula von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Mario Draghi, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, ásamt Ursula von der Leyen, for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Mynd: EPA

Forystu­fólk í Evrópu­sambandinu mun sennilega gefa grænt ljós á tillögu framkvæmda­stjórnar sambandsins um að hrinda af stað stuðnings­aðgerðum fyrir tekjulág heimili og fyrirtæki til þess að sporna gegn áhrifum mikilla orkuverðs­hækkana. Aðgerðirnar verða fjár­magnaðar með svokölluðum hvalreka­skatti á orku­fyrirtækin sem grætt hafa mest í álfunni. Þetta kemur fram í frétt Bloomberg sem birtist í gær.

Skattlagning á hagnað orkufyrirtækja

Samkvæmt fréttinni munu þjóðar­leiðtogar aðildar­ríkja sambandsins ræða hvernig eigi að styðja við atvinnu­lífið og tekjulág heimili í yfir­standandi orkuverðskrísu á tveggja daga fundi í vikunni. Orkuverð á megin­landi Evrópu hefur hækkað mikið á undan­förnum mánuðum, en þær má meðal annars rekja til minni innflutningi á gasi til húshitunar frá Rússlandi.

Á fundinum, sem hefst á morgun, verður farið yfir tillögur framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins um að koma á fót sameiginlegt styrkja­kerfi sem gæti nýst fyrir heimilin aðildar­ríkjum sambandsins á krísu­tímum.

Í drögum að sameiginlegri yfir­lýsingu sambandsins, sem Bloomberg komst yfir, segir að góð leið til að fjármagna þessa styrki væri svokallaður hvalreka­skattur á orku­fyrirtæki. Slíkur skattur væri lagður á hagnað fyrir­tækjanna, en búist við er að hann hafi aukist um 200 milljarða evra í aðildar­ríkjunum – sem jafn­gildir um 28 billjónum króna – í vetur vegna verð­hækkana á orkunni sem þau seldu.

Nú þegar ákveðið í Ítalíu

Ríkis­stjórn Ítalíu hefur nú þegar ákveðið að skatt­leggja orku­fyrirtækin þar í landi til að fjármagna aðgerðar­áætlun fyrir tekjulág heimili, samkvæmt frétt Bloomberg frá því fyrir helgi. Þar munu fyrirtæki í geiranum sem juku hagnað sinn um meira en fimm milljónir evra – sem jafn­gildir um 715 milljónum íslenskra króna – þurfa að greiða 10 prósenta eingreiðslu­skatt á hagnaðinn sinn.

Með slíkri skatt­lagningu segir Mario Draghi, forsætis­ráðherra landsins, að ríkis­stjórnin geti stutt við þá sem hafa þurft að gjalda fyrir orkuverðs­hækkanirnar án þess að stórauka fjárlaga­hallann sinn og skulda­söfnun hins opinbera.

Engar stuðningsaðgerðir hér á landi

Fjármála- og efnahags­ráðuneytið birti í gær niður­stöður úr minnis­blaði sínu um áhrif hækkandi orkuverðs á íslensk heimili. Samkvæmt því hefur verð­hækkunin haft minni áhrif á fjárhag heimila hér á landi heldur en í öðrum Evrópu­löndum, þar sem kynding væri almennt ekki háð olíu og gasi.

Einnig sagði ráðuneytið að fjárhagur íslenskra heimila og innlend eftir­spurn væri sterk og bætti við að almennar milli­færslur eða skatt­afslættir myndu ekki endilega skila sér til heimila, þar sem slíkar aðgerðir myndu enn auka verðbólgu og hækka vaxta­kostnað.

Þó stóð einnig í minnis­blaðinu að mikilvægt sé að fylgjast með áhrifum á tekjulág heimili, sérstak­lega þau sem ættu ekki húsnæði. Skuldsett heimili sem væru nýkominn inn á húsnæðis­markað gætu einnig lent í vanda ef ráðist væri í „ómark­vissar aðgerðir sem leiða til hærri vaxta.“ Ef talin væri þörf á því að bregðast við áhrifum á þessa hópa þyrftu þær aðgerðir að vera afmarkaðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár