Slökkvilið gerði alvarlegar athugasemdir við brunavarnir í félagsmiðstöð í Kópavogi

Slökkvilið höfuð­borgar­svæðisins gerði á dögunum alvarlegar athuga­semdir við bruna­varnir í félags­miðstöðinni Igló, sem er til húsa hjá Snælands­skóla í Kópavogi. Ráðist var í óreglu­lega eldvarna­skoðun hjá félags­miðstöðinni eftir að slökkviliðinu barst ábending frá foreldra úr hverfinu. Um er að ræða glugga­laust kjallara­rými sem ekki var hannað undir félags­miðstöð.

Í skoðunar­skýrslunni, sem Kjarninn hefur undir höndum, eru gerðar athuga­semdir við aðgengi að flótta­leið, sem var falin bakvið tjald og húsgögn, og að svæði milli tjaldsins og eldvarna­hurðar hafi verið nýtt sem geymsla þar sem komið hafði verið fyrir brennanlegu dóti.

Slökkvilið höfuð­borgar­svæðisins taldi umtals­verða ágalla á bruna­vörnum mann­virkisins, sem er næst hæsta stig af fjórum. Alvarlegir ágallar er hæsta stigið sem slökkviliðið notar til að lýsa stöðu bruna­varna hverju sinni.

Skoðunar­skýrslan var send Snælands­skóla og skóla­stjórnendum veittur eins dags frestur til að hlíta tilmælum slökkviliðsins um viðeigandi úrbætur.

Í samtali við Kjarnann segir Alfons S. Kristinsson, skoðunar­maðurinn hjá Slökkviliðið höfuð­borgar­svæðisins sem annaðist úttektina á bruna­vörnum húsnæðisins, að daginn eftir að krafist var úrbóta hafi forráða­maður félags­miðstöðvarinnar sent ljós­myndir í tölvupóst sem staðfestu að brugðist hafði verið við tilmælum slökkviliðsins.

Þá segir Alfons að almennt séu bruna­varnir í góðu lagi hjá skólum og félags­miðstöðvum í Kópavogi, en slökkvilið framkvæmir reglu­bundið eftirlit með bruna­vörnum hjá þessum aðilum á hverju hausti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár