Vladimir Pútín: Blatter á skilið Nóbelsverðlaun

Vladimir Pútín, forseti Rússlands, telur að Sepp Blatter, fráfar­andi forseti FIFA, eigi skilið Nóbels­verðlaun fyrir störf sín í þágu knattspyrnu­sambandsins. Í viðtali við svissnesku sjónvarps­stöðina RTS sagði Pútín að Blatter og aðrir æðstu stjórn­endur alþjóðlegra íþrótta­sambanda eigi skilið viðurkenningu. Ef einhverjir eigi skilið Nóbels­verðlaun, þá sé það þetta fólk. The Guardian greinir frá í dag.

Blatter og Pútín hittust í St. Péturs­borg síðasta laugardag þegar dregið var í riðla fyrir undan­keppni Heims­meistara­mótsins í knatt­spyrnu sem verður haldið í Rússlandi 2018. Blatter opinberaði að FIFA styðji að fullu við bakið á gest­gjöfum Rússum, en landið hefur glímt við mikla erfið­leika í efnahags­lífinu að undan­förnu. „Við vitum stöðuna á Blatter í dag. Ég vil ekki ræða smáatriði en ég trúi ekki orði af því sem sagt er um hann tengist spillingar­málum persónu­lega,“ sagði Pútín við fjölmiðla. Blatter tilkynnti í júní síðastliðnum að hann muni stíga niður af stóli forseta FIFA. Það gerði hann í kjölfar handtaka í maí síðastliðnum á níu stjórn­endum FIFA og ákærum um peninga­þvætti, mútur og spillinu. Blatter hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu og hefur ekki verið ákærður. Það var bandaríska alríkis­lögreglan, FBI, sem rann­sakaði starfsemi FIFA.


Stóra spillingar­málið hefur vakið spurningar um hvort stjórn­völd í Rússlandi og Katar, sem halda mótið 2022, hafi fengið útnefningu FIFA með löglegum og heiðar­legum hætti. Rússar hafa ætíð hafnað því að nokkuð misjafnt hafi viðhafst.


Líklegasti arftaki Sepp Blatter í starf forseta FIFA er Michael Platini, forseti UEFA. Búist er við að hann greini frá framboði sínu til forseta FIFA síðar í þessari viku, að því er segir í frétt á Fótbolti.net. Kosningarnar verða haldnar þann 26. febrúar á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár