Ísland í riðli með Króatíu, Úkraínu, Tyrklandi og Finnlandi í undankeppni HM 2018

Íslenska karla­landsliðið í knatt­spyrnu hafnaði í I-riðli með Króatíu, Úkraínu, Tyrklandi og Finnlandi í undan­keppni Heims­meistara­mótsins í fótbolta sem fram fer í Rússlandi árið 2018.

Karla­landsliðið var í fyrsta skipti í öðrum styrkleika­flokki við útdrátt fyrir riðla­keppni stórmóts í knatt­spyrnu. Í öðrum styrkleika­flokki voru sterkar knattspyrnu­þjóðir á borð við Ítalíu, Slóvakíu, Austur­ríki, Sviss, Tékkland, Frakkland, Danmörku og Bosníu-Herzegóvínu sem þýddi að íslenska karla­landsliðið gat ekki lent með áður­nefndum þjóðum í riðli.

Heims­meistarar Þjóðverja höfnuðu í C-riðli ásamt Tékkum, Norður-Írum, Norð­mönnum, Aserum og landsliði San Marínó. Þá geta Englendingar prísað sig sæla en þeir leika í F-riðli undan­keppninnar þar sem þeir munu kljást við landslið Slóvakíu, Skotlands, Slóveníu, Litháen og Möltu.

Svíar eiga ærið verkefni fyrir höndum, en þeir drógust í A-riðil ásamt Hollandi, Frakk­landi, Búlgaríu, Hvíta-Rússlandi og Lúxemborg. Þá höfnuðu Danir í E-riðli með lands­liðum Rúmeníu, Póllandi, Svart­fjallalandi, Armeníu og Kasakstan.

Alls var dregið í níu riðla fyrir þjóðir Evrópu en sigurveg­arar þeirra fara beint á HM 2018 í Rússlandi og átta lið sem lenda í öðru sæti fara svo í umspil um laust sæti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár