FIFA-ákærur: Kerfisbundið peningaþvætti, mútur og stórfelld spilling

Ákærurnar á hendur níumenningunum sem hafa verið meðal æðstu stjórn­enda FIFA undan­farin ár byggja á kerfis­bundnu peninga­þvætti, mútum og stór­felldri ólöglegri háttsemi og spillingu. Þetta kemur fram í ákæru­skjalinu, sem The Guardian vitnar til í umfjöllun sinni, en Loretta Lynch, saksóknari í Banda­ríkjunum, sagði á blaðamanna­fundi í dag að 47 ákæru­atriði væru upptalin sem tengdust meðal annars fjár­svikum auk fyrr­nefndra atriða. Voru atriðin saman­tekin í tilkynningu og kynnt á fundinum.

Ákæran byggir á rannsókn Alríkis­lögreglunnar FBI á spillingu innan FIFA, sem hófst í kjölfar þess að ákveðið var að halda HM í Rússlandi 2018 og Katar 2022. Rann­sóknin nær hins vegar til mun fleiri atriða sem aðeins þessara tveggja atriða, samkvæmt sem fram kom á blaðamanna­fundi saksóknara í dag.

Ákæra verður gefin út á hendur alls níu stjórn­endum og stjórnar­mönnum FIFA til viðbótar við þá sjö sem voru hand­teknir í Sviss. Á meðal þeirra sem einnig verða ákærðir, en voru hand­teknir í morgun, eru Jack Warner, fyrrum vara­forseti FIFA frá Trinidad og Tobago, Jef­frey Webb frá Caym­an Is­lands, vara­for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar FIFA, og Eu­genio Figu­eredo frá Úrúg­væ. Búist er við að nokkrir stjórn­endur íþrótta­markaðs­fyrirtækja frá Banda­ríkjunum og Suður-Ameríku verði líka ákærðir en þeir eru grunaðir um að hafa greitt meira en 150 milljónir dala, um 20,2 milljarða króna, í mútur og greiðslur undir borðið og fengið í staðinn arðvæna fjölmiðla­samninga í tengslum við stórar knattspyrnu­keppnir á vegum FIFA. Sepp Blatter, forseti FIFA, er ekki á meðal þeirra sem hafa verið hand­teknir, en ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort hann sjálfur er til rann­sóknar hjá bandarískum yfir­völdum.

Lynch sagði að rannsókn hefði leitt til rann­sóknar á málum, þar sem djúpstæð spilling hefði verið staðfest, bæði á erlendum vettvangi og í Banda­ríkjunum. Í það minnsta tvær kynslóðir stjórn­enda hjá FIFA eru til rann­sóknar, að því er fram kom í máli Lynch, þar sem grunur leikur á því að þeir hafi misnotað aðstöðu sína til þess að þiggja mútugreiðslsur. Eru brotin sem liggja til grund­vallar hand­tökunum rakin til ársins 1991, sérstak­lega greiðslur frá íþrótta­vöru­fram­leiðendum sem hindruðu framgang samkeppnis­aðila með mútu­greiðslunum.

Kelly Currie, starfandi saksóknari í Banda­ríkjunum, sagði að ekki væru öll kurl komin til grafar ennþá í rannsókn málsins, og að fleiri ákærur yrðu hugsanlega gefnar út á hendur stjórn­endum FIFA.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár