Lykilspurningar varðandi aðgerðir FIFA: Um hvað snýst málið?

Breski fjöl­miðillinn The Guardian birti í morgun helstu upplýsingar sem varða aðgerðir lögreglunnar í Sviss sem beinast að hátt­settum mönnum sem starfa, eða hafa starfað, fyrir FIFA. New York Times fjallar síðan ítarlega um málið í dag og hefur raunar leitt umfjöllun um málið frá árinu 2013. Bandarísk yfirvöld fara með rannsókn málsins en grunur er uppi um að einstaklingarnar sem um ræðir hafi þegið mútur upp á hið minnsta 150 milljónir Band­ríkjadala, eða sem nemur um þrettán milljörðum króna, vegna undir­búnings fyrir staðaval HM í fótbolta sem haldið verður í Rússlandi 2018 og Kata 2012.

Hverjir voru handteknir?


Samkvæmt frétt New York Times verður ákæra gefin út á hendur alls átta stjórn­endum og stjórn­ar­mönnum FIFA til við­bótar við þá sex sem voru hand­teknir í Sviss. Á meðal þeirra sem einnig verða ákærðir, en voru hand­teknir í morgun, eru Jack Warner, fyrrum vara­for­seti FIFA frá Trinidad og Tobago, Jef­frey Webb frá Caym­an Is­lands, vara­for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar FIFA, og Eu­genio Figu­eredo frá Úrúg­væ. Búist er við að nokkrir stjórn­endur íþrótta­mark­aðs­fyr­ir­tækja frá Banda­ríkj­unum og Suður-Ameríku verði líka ákærðir en þeir eru grun­aðir um að hafa greitt meira en 150 millj­ónir dala, um 20,2 millj­arða króna, í mútur og greiðslur undir borðið og fengið í stað­inn arð­væna fjöl­miðla­samn­inga í tengslum við stórar knatt­spyrnu­keppnir á vegum FIFA. Sepp Blatter, for­seti FIFA, er ekki á meðal þeirra sem hafa verið hand­teknir, en ekki liggja fyrir upp­lýs­ingar um hvort hann sjálfur er til rann­sóknar hjá banda­rískum yfir­völdum.

Hvers vegna var gripið til aðgerða núna?


Lög­reglu­yf­ir­völd í Sviss virð­ast hafa tíma­sett aðgerð­irnar fyrir árs­fund FIFA sem hefst á föstu­dag­inn, þar sem flestir þeirra sem hafa nú verið hand­teknir voru komnir saman á sama stað. Þeir voru á Baur au Lac, lúx­us­hót­eli í Sviss með útsýni yfir sviss­nesku Alpana.

Hvers vegna eru bandarísk yfirvöld að rannsaka FIFA?


Sak­sókn­ari í Banda­ríkj­unum hefur þegar boðað til blaða­manna­fundar síðar í dag, þar sem farið verður yfir þau atriði sem rann­sóknin bein­ist að, að því er fram kemur í Guardian í dag. Alrík­is­lög­reglan FBI hefur verið með mútu­mál sem teng­ist stjórn­endum FIFA til rann­sóknar und­an­farin ár, en fréttir þess efnis voru sagðar í fjöl­miðlum í mars 2013, og síðan í nóv­em­ber 2014. Chuck Blazer, fyrr­ver­andi með­limur í fram­kvæmda­stjórn FIFA, er sagður hafa unnið með FBI eftir að gögn fund­ust um skattaund­an­skot hans. Samkvæmt frá­sögn The New York Daily News í nóv­em­ber í fyrra, sem Guardian vitnar til, var Blazer með upp­töku­græjur frá FBI inn á sér þegar hann ræddi við nokkra þeirra sem hafa nú verið hand­teknir á fundi. Þetta eru sögð lyk­il­gögn í mál­inu.

Hver er Chuck Blazer?


Chuck Blazer. Mynd: EPA.

Chuck Blazer. Mynd: EPA.
Chuck Blazer. Mynd: EPA.

Blazer hætti störfum hjá FIFA í maí 2013, og var bannað að hafa afskipti af fótbolta í nítíu daga, vegna ásakana um að hann hefði þegið mútur upp á tuttugu milljónir Bandaríkja­dala, jafnvirði um 2,6 milljarða króna. Blazer er sjötugur, og sagður hafa verið maðurinn á bak við mikinn árangur sem náðst hefur við markaðs­setningu fótbolta í Banda­ríkjunum á síðustu árum. Blazer er þekktur fyrir áberandi lúxus-lífstíl en hann á íbúð á besta stað á Manhattan og einnig risavaxna villu á Bahamas. Hann hefur oft verið nefndur Herra tíu prósent (Mr. Ten Percent) vegna samninga sem hann gerði við knattspyrnu­sambönd Mið-Ameríku um að fá til sín tíu prósent af tekjum.

Sepp Blatter, forseti FIFA, sagði á blaðamanna­fundi í morgun að engar húsleitir hefðu verið gerðar á skrif­stofum FIFA. Þá sagði hann ennfremur að samkvæmt upplýsingum sem hann hefði, þá væri FIFA þolandinn í málinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár