Le Pen segir Zlatan Ibrahimovich að hann geti farið frá "skítalandinu"

Marie Le Pen, leiðtogi hægri flokksins Front National í Frakk­landi, hefur sagt Zlatan Ibrahimovich að hann geti farið frá Frakk­landi ef honum líki það ekki. Sænski knattspyrnu­kappinn, sem leikur með franska liðinu Paris Saint-Germain, hefur þurft að biðjast afsökunar á því að kalla Frakkland skítaland samhliða því að úthúða dómara eftir leik um helgina. Ummæli hans hafa ýtt af stað miklum pólitískum deilum í Frakk­landi, samkvæmt frétt Guardian um málið.

Ibrahimovich mun mæta fyrir aganefnd á fimmtudag og þá kemur í ljós hversu langt bann hann fær fyrir atvikið.

Þeir sem telja Frakkland skítaland geta farið


Paris Saint-Germain tap­aði 3-2 fyrir Bordeaux um helg­ina og Ibrahimovich missti algjör­lega stjórn á skapi sínu fyrir framan mynda­vél­arnar eftir leik­inn. Hann helti sér yfir dóm­ara leiks­ins og sagði að "skíta­landið" Frakk­land ætti ekki skilið lið eins og Paris Sain-Germain.

Marie Le Pen.

Marie Le Pen.
Marie Le Pen.

Le Pen var spurð út í atvikið í útvarps­viðtali í dag og sagði: "þeir sem telja að Frakkland sé skítaland geta farið. Það er það einfalt."

Ibrahimovic hefur beðist afsökunar og sagt að ummælin hafi beinst að dómara leiksins. Þau hafi ekki verið ætluð "Frakk­landi eða Frökkum."

Leik­maðurinn skoraði tvívegis í leiknum en tapið þýðir að Paris Saint-Germain er tveimur stigum á eftir topp­liðinu Lyon í frönsku deildar­keppninni.

Þetta var í annað sinn á skömmum tíma sem Ibrahimovich komst í fréttirnar vegna niðrandi ummæla en eftir meistardeildarleik við Chelsea í síðustu viku kallaði hann leikmenn andstæðinganna "lítil börn". Hann var rekinn út af í leiknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár