Baráttan um frönsku kartöflurnar: „Það blasir algjörlega við að tollurinn verndar ekki neitt“

Það fjölgar í hópi þeirra sem kalla eftir afnámi verndar­tolla á franskar kartöflur. Eina íslenski fram­leiðandinn til áratuga hefur hætt. Tollarnir vernda því engan, eins og staðan er í dag.

Tilboðsfranskar
Til­boðs­franskar Franskar frá Þykkva­bæjar voru um ára­bil seldar undir heit­inu Til­boðs­franskar. Þær voru þó ekki á neinu til­boði og í dag eru þær heldur ekki einu sinni fáan­legar.

Ekki er hægt að flytja inn franskar kartöflur nema að greiddir séu háir tollar sem ætlað er að vernda íslenska fram­leiðslu á sömu vöru. Nú er hins vegar svo komið að engin frönsk kartafla er framleidd á Íslandi, eftir að Þykkvabæjar hætti fram­leiðslu sem staðið hafði samfleytt í áratugi. Minnst fern hagsmuna­samtök fyrir­tækja hafa kallað eftir afnámi þessara tolla. 

Enginn til að verndaÓlafur, hjá Félagi atvinnu­rek­enda, segir eng­ann lengur til staðar til að vernda fyrir erlendum frönskum.

„Svandís vísaði þessu eiginlega á Bjarna,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmda­stjóri Félags atvinnu­rekenda, um viðbrögð við erindum félagsins vegna innfluttu fransk­anna sem beint var til bæði matvæla­ráðherra og fjármála­ráðherra. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, svaraði frétta­stofu Sýnar á þann veg að margt í tolla­málum mætti skoða og stjórn­völd mættu vera virkari í að laga toll­heimtu að þörfum nútímans.

Ráðherrann hefur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár