Brim komið yfir hámarksaflahlutdeild

Útgerðar­félagið Brim er komið yfir lögbundna hámarks­hlutdeild í afla­heimildum. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, hefur aukið enn á persónu­lega hlutdeild sína í fisk­veiðikvóta. Þetta sýna nýbirtar tölur Fiskistofu.

Stórtækur
Stór­tækur Guð­mundur Krist­jáns­son stýrir bæði félag­inu sem stýrir mestum afla­heim­ildum og er sá ein­stak­lingur sem á stærstan eign­ar­hlut í félag­inu. Hans eigin útgerð­ar­fé­lag er líka meðal stærstu útgerða lands­ins.

Útgerðar­félagið Brim er komið yfir lögbundna hámarks­hlutdeild í afla­heimildum, samkvæmt nýbirtum lista Fiskistofu. Útgerðin fer með 13,2 prósent allra afla­heimilda, mælt í þorsk­ígildis­tonnum, samkvæmt útreikningum stofnunarinnar. Lögbundið hámark er 12 prósent. 

BlokkinÚtgerð­ar­fé­lagið Brim og þær útgerðir sem ýmist eiga eða eru í eigu þess fara sam­tals með 17,4 pró­sent afla­heim­ilda á Íslandi.

Til viðbótar við þessi rúmu þrettán prósent á Brim útgerðina Ögurvík að fullu, sem fer með 0,76 prósent afla­heimilda, og útgerðina Grunn, sem fer með 0,31 prósent afla­heimilda. Grunnur á 40,8 prósent í útgerðinni Þórsbergi, sem fer með 0,25 prósent afla­heimilda. Samtals er því Brim með yfirráð yfir 14,37 prósent kvótans. Það er 2,37 prósentu­stigum umfram lögbundið hámark.

Útgerðar­félag Reykja­víkur, sem að stærstum hluta er í eigu Guðmundur Kristjáns­sonar, forstjóra Brims, fer svo með 2,23 prósent afla­heimilda. KG fiskverkun, sem er í eigu bróður Guðmundar, Hjálmars Þórs Kristjáns­sonar og sona hans, fer með 0,66 prósent afla­heimilda. Blokkin sem þessi sex útgerðar­félög, sem tengjast í gegnum eignar­hald sitt, stýrir 17,4 prósentum kvótans.

Brim hefur, samkvæmt lögunum um hámarks­hlutdeild í afla­heimildum, sex mánuði til að koma sér aftur undir 12 prósenta markið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár