Tala látinna hækkar, neyðarástand í París - myndband af vettvangi

Neyðar­ástandi hefur verið lýst yfir í París, vegna árásinnar á ritstjórn Charlie Hebdo. Francois Hollande, forseti Frakk­lands, er á vettvangi og hefur þegar sagt að árásin sé sérstak­lega ógeðfelld og að allt verði gert til að ná þeim sem stóðu á bak við hana. Mennirnir sem skutu fólkið til bana ganga lausir í París.

Byssumenn réðust í morgun á ritstjórn skop­mynda­ritsins Charlie Hebdo í París og myrtu í það minnsta tólf manns og særðu tíu, að því er fram kemur í frásögn breska ríkis­útvarpsins BBC. Tala látinna hefur farið hækkandi, í frásögnum fjölmiðla, þar sem upplýsingar um afleiðingar árásarinnar berast stöðugt. Samkvæmt lýsingum vitna, sem BBC vitnar til, komu tveir menn vopnaðir Kalishnikov rifflum á skrift­stofur ritsins og hófu skothríð með fyrr­nefndum afleiðingum. Hluta af árásinni má sjá í myndbandi sem francetv hefur birt, sem tekið er ofan af húsþaki í grennd við skrif­stofur Charlie Hebdo.

Síðasta tíst ritsins á Twitter var með mynd af leiðtoga Íslamska ríkisins, Abu Bakr al-Baghdadi. Ekki hefur enn verið staðfest hver ber ábyrgð á árásinni.

Skrif­stofur Charlie Hebdo hafa áður verið skotmark hryðjuverkumanna, en sprengja sprakk við skrif­stofurnar í nóvember 2011. Fréttin verður uppfærð eftir því sem nýjar upplýsingar berast.

Lögreglan í París hefur lokað öllum götum í námunda við skrif­stofur Charly Hebdo.

Lögreglan í París hefur lokað öllum götum í námunda við skrifstofur Charly Hebdo.
Lög­reglan í París hefur lokað öllum götum í námunda við skrif­stofur Charly Hebdo.

Uppfærsla 12:55, um tveimur tímum eftir að fyrstu fréttir fjölmiðla birtust af árásinni: Tveir lögreglu­menn voru skotnir til bana, og 10 starfs­menn Charlie Hebdo.

Meilleurs vœux, au fait. pic.twitter.com/a2JOhqJZJM

— Charlie Hebdo (@Charlie_Hebdo_) January 7, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár