Fólk verður að skilja að fasteignaverðið gæti lækkað

Fasteigna­verð hefur hækkað hratt í Danmörku, og grein­endur eru nú farnir að minna á hið augljósa; að fasteigna­verðið gæti lækkað aftur.

Danir hafa upplifað mikla uppsveiflu á fasteigna­markaði á síðustu árum, en frá árinu 2006 og fram á árið 2009 lækkaði verðið um 30 prósent. Skellurinn sem kom í efnahagslíf Dana – eins og flestra annarra ríkja – eftir hremmingar á alþjóð­legum fjármála­mörkuðum haustið 2008, gerði stöðuna síðan enn verri og leiddi til vaxandi vanskila.

Undan­farin sjö ár hefur fasteigna­verðið, ekki síst á Kaupmanna­hafnar­svæðinu, hækkað jafnt og þétt og er það nú komið yfir það sem hæst var árið 2006, að því er fram kemur í umfjöllun Bloomberg. Greinandi hjá bankanum Nykredit, Mira Lie Nielsen, segir að fátt bendi til þess að fasteigna­verðið sé að fara lækka, en hún segir að nauðsynlegt sé að koma fólki í skilning um það, að verðið geti lækkað.

Í Kaupmanna­höfn hefur fasteigna­verðið hækkað um 9,4 prósent á einu ári, og segir Nielsen að staðan í borginni sé nú þannig, að fáir íbúar í borginni, sem ekki séu þegar komnir inn á markaðinn og hafi þannig hagnast á mikilli hækkun fasteigna­verðs, geti keypt hefð­bundnar íbúðir á markaðnum. „Þetta háa verð miðsvæðis er farið að hafa áhrif til minni umsvifa (damping role) á markaðnum,“ segir Nielsen í viðtali við Bloomberg.

Nykredit er með um 40 prósent markaðs­hlutdeild á fasteigna­markaði í Danmörku, og hafa grein­endur bankans bent á að hættu­merki séu á fasteigna­markaði, þar sem vextir séu óvenju­lágir í augna­blikinu, eða alveg við núllið. Þetta geti leitt til þess að fjöldi fólks sem geti keypt íbúð núna, gæti lent í vanda ef vextir myndu hækka á nýjan leik.

Reglu­breytingar sem miða að því að koma í veg fyrir ójafnvægi á fasteigna­markaði hafa verið innleiddar í danska fjármála­kerfið, bæði með lögum og breytingum á skilmálum sem bankar hafa sett fyrir lánum. Þær miða að því að koma í veg fyrir að fólk geti fengið lán til að kaupa íbúð, sem síðan lendir fljótt í vanskilum. Slíkt gerðist á árunum 2004 til 2007 í Danmörku, eins og víða annars staðar. Þá var mögulegt að fá 100 prósent fasteignalán, eins og föllnu bankarnir gerðu hér á landi, en hámarkslán í Danmörku er nú 95 prósent af kaupverði fyrstu eignar.

Hér á landi hefur þróun fasteigna­verðs verið með svipuðum hætti og í Danmörku. Fasteigna­markaðurinn á höfuð­borgar­svæðinu hefur einkennst af miklum verð­hækkunum á undan­förnum árum, eftir mikinn skell í aðdrag­anda og kjölfar hrunsins fyrir tæpum átta árum. Á undan­förnum fjórum árum hefur verðið hækkað um 30 prósent að raunvirði, og mældist hækkunin í júní síðastliðnum 2,2 prósent, sem er mesta hækkun á einum mánuði frá því fyrir hrunið.

Flestar spár gera ráð fyrir áfram­haldandi hækkun fasteigna­verðs, ekki síst vegna þess að of lítið framboð er af eignum, einkum litlum og meðal­stórum íbúðum, miðað við mikla eftir­spurn. Auk þess hefur mikill vöxtur í ferða­þjónustu á undan­förnum árum ýtt undir hækkun fasteigna­verð, þar sem þúsundir íbúða hafa verið nýttar til útleigu fyrir ferðamenn. 

Eins og Kjarninn greindi frá 6. júlí þá hafa íbúðir aldrei selst hraðar en á fyrri hluta þessa árs. Íbúðir eru að jafn­aði tals­vert skemur í sölu nú en á und­an­förnum tíu árum. Ein­ungis tekur um sjö vikur (1,87 mán­uð) að selja íbúð­ar­hús­næð­i miðað við veltu á fast­eigna­mark­aði í apr­íl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár